Lífið

Ofurfyrirsæta féll í sprungu á Vatnajökli

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ashley Graham á Vatnajökli.
Ashley Graham á Vatnajökli. instagram
Ofurfyrirsætan Ashley Graham hefur varið síðustu dögum á Íslandi. Hún er stödd hér á landi ásamt eiginmanni sínum, Justin Evrin, og hafa þau verið iðin við að njóta þess sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða.

Fyrirsætan hefur verið dugleg að deila ævintýrum síðustu daga með aðdáendum sínum. Til að mynda greindi hún frá því á Instagram, þar sem hún er með rúmlega 7,2 milljónir fylgjenda, að hún hafi ekki aðeins fallið í sprungu á Vatnajökli heldur jafnframt pissað á jökulinn í einu snjósleðastoppinu.

Með því að smella hér má sjá myndband af fyrirsætunni og eiginmanninn á Vatnajökli, þar sem hún greinir meðal annars frá klósettferðinni. Hér að neðan eru tvær færslur sem hún hefur birt úr Íslandsheimsókninni, sú síðari úr hestaferð í blíðskaparveðri þar sem má heyra hana syngja lag úr söngleiknum The Adventures of Lewis and Clark.

Graham hefur verið á forsíðum tímaritana Vogue, Harper‘s Bazaar og Elle. Þar að auki hefur hún einnig verið í nokkrum auglýsingum fyrir gallabuxnaframleiðandann Levi‘s.

Thank you @mountaineersoficeland for the glacier ride

A post shared by A S H L E Y G R A H A M (@ashleygraham) on

Show choir, 6th grade -who else remembers?!

A post shared by A S H L E Y G R A H A M (@ashleygraham) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.