Lífið

Lóan er farin og Siggi líka

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigurður og Lóa Pind er farin heim.
Sigurður og Lóa Pind er farin heim. vísir/atli
Dansparið Lóa Pind Aldísardóttir og Sigurður Már Atlason féllui úr leik í skemmtiþættinum Allir geta dansað.

Í þætti gærkvöldsins dönsuðu Lóa og Sigurður Cha cha við lagið Sex Bomb eftir Tom Jones.

Stigahæstu pörin voru annars vegar Hugrún Halldórsdóttir og Daði Freyr Guðjónsson sem fengu 29 stig og hins vegar  Javier Fernández Valiño og Ebba Guðný Guðmundsdóttir sem fengu 28 stig.

Lóa Pind og Sigurður fengu 20 stig samtals frá dómurunum. Í þættinum Allir geta dansað keppa tíu þjóðþekktir einstaklingar í dansi en þeir dansa við tíu fagdansara og stendur eitt par uppi sem sigurvegari. Þau dönsuðu Quickstep við Hey Pachuco úr The Mask Theme.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.