Lífið

Sjö hlutir sem ríkið getur eytt 22 milljónum í

Benedikt Bóas skrifar
Fínar hugmyndir.
Fínar hugmyndir.
Ríkisstjórnin eyddi 22 milljónum í lýsingu á hátíðarfundi Alþingis í júlí. Fréttablaðið bjó til lista fyrir ríkið, vilji það halda áfram að eyða peningi í óþarfa eins og að lýsa upp hátíðarsviðið um hábjartan júlídag. 

Rosalegir ráðherrar

Ráðherrabílar eru eitt mesta bruðl síðari ára. En af hverju að hætta þar? Af hverju ekki að fljúga Xzibit, úr þáttunum Pimp My Ride, hingað og blinga upp ráðherrabílana? Það er frábær hugmynd.

Einn góður úr Pimp My Ride.
Strandveður allt árið

Fyrst það var hægt að eyða öllum þessum milljónum í lýsingu er hægt að eyða álíka í hita í Nauthólsvík. Sólbað í nóvember, þökk sé ríkisstjórninni. Það myndi tryggja þeim fjögur ár til viðbótar. Það er frábær hugmynd.

Fínt að hita upp Nauthólsvík.Fréttablaðið/ernir eyjólfsson
Norðurljósatúnið

Af hverju að fara út úr borginni til að sjá hin ótrúlegu norðurljós? Af hverju ekki að breyta bara Klambra túni í eitt stórt Norðurljósatún? Ljósasérfræðingar ríkisins munu hanna einhverja klikkaða sýningu. Það er frábær hugmynd.

Allir í orlofi

Fyrir 22 milljónir má kaupa sér örlítinn kofa á Spáni. Af hverju á íslenska þjóðin ekki orlofshús þar í landi? Sól og sangría í boði ríkisins. Það er frábær hugmynd

Fínt að eiga einn kofa á Spáni.
Hvalaskoðun á tveimur jafnfljótum

Hver vill ekki skoða hvali? Núna er tíminn til að byggja einhverja svakalegustu göngubrú allra tíma eitthvert lengst út á haf og sjá hvali sem reglulega heimsækja landið. Þeir eru alltaf að koma nær og nær eins og dæmin sanna í sumar. Það er frábær hugmynd.

Alltaf gaman í góðri hvalaskoðun.
Orkuskipti alþingismanna 

Nú er voðalega vinsælt á Alþingi að ætla að banna bensínspúandi bíla. Það væri því ekki vitlaust að kaupa Segway-hjól fyrir ríkisstjórnina og láta þau reyna að fara á milli staða með rafmagnið að vopni. Það er frábær hugmynd.

Segway er skemmtilegur ferðamáti.
Þeysast um sjóinn

Alþingi er niðri í miðbæn. Og það þarf að losna við bíla úr morgunumferðinni. Alþingismenn keyra mikið. En af hverju ekki að fara sjóleiðina? Sæþotur á liðið. Það er frábær hugmynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.