Greining UBS ber einnig með sér að svo miklir fjármunir hafi safnast á hendur þessa hóps að fram séu að spretta nýjar ofurríkar og valdamiklar ættir. Auður þeirra gengur kynslóð fram af kynslóð og því til sönnunar nefnir bankinn að af þeim 179 einstaklingum sem bættust í hóp milljarðamæringa á síðasta ári höfðu rúmlega 40 þeirra erft ríkidæmi sitt. Þar að auki sé fjöldi núlifandi milljarðamæringa kominn á efri ár og áætlar UBS að um 3,4 billjónir dala muni rata í hendur afkomenda auðmanna á næstu tveimur áratugum.
Á undanförnum fimm árum hefur virði auðsins sem erfist frá milljarðamæringum til afkomenda þeirra aukist um 17% á ári. Heildarfjárhæðin nam 117 milljörðum dala í fyrra en alls erfðu 44 einstaklingar meira en milljarð bandaríkjadala frá foreldrum sínum árið 2017.
Sjá einnig: Jeff Bezos ríkasti maður sögunnar
Lengi hefur verið grínast með það að fyrsti ættliðurinn skapi auðinn, sá næsti haldi honum við og þriðja ættliðurinn láti auðinn sér úr greipum renna. Svissneski bankinn segir gögnin benda til að þetta eigi hins vegar ekki lengur við. Sumar fjölskyldur hafi viðhaldið auðæfum sínum kynslóð fram af kynslóð, jafnvel milli fimm eða sex ættliða.

Í þeira hópi eru Bill Gates, næst ríkasti maður heims með sína 95 milljarða bandaríkjadala, og sá þriðji ríkasti, Warren Buffet, sem metinn er á 84 milljarða dala.
Ríkasti maður mannkynssögunnar, Jeff Bezos, er hins vegar ekki búinn að setja nafn sitt við samkomulagið. Bezos, sem metinn er á 146 milljarða dala, stofnaði þó í síðasta mánuði heljarinnar góðgerðarsjóð sem mun einblína á heimilsleysi og að bæta kjör fátækra barna. Sjóðurinn mun hafa úr 2 milljörðum dala að spila.
Sjá einnig: Eftir miklu að slægjast í vösum asískra ferðamanna
Ríkasti maður Bretlandseyja, Íslandsvinurinn Sir Jim Ratcliffe, er að sama skapi ekki þátttakandi í Giving Pledge. Hann hefur nú í hyggju að flytja sinn 21 milljarð dala til Monaco, þar sem hann mun ekki þurfa að greiða jafn háa skatta og heimafyrir. Aðeins örfáir mánuðir eru síðan að Ratcliffe fékk riddaratign fyrir framlag sitt til viðskipta og fjárfestinga á Bretlandseyjum. Hans helsta góðgerðarframlag var 25 milljón punda greiðsla til viðskiptaháskólans í Lundúnum. Fyrir vikið fékk hann skólabyggingu nefnda í höfuðið á sér.
Flesta milljarðamæringar heims má sem fyrr finna í Bandaríkjunum. Fjölgun milljarðamæringa í Kína er hins vegar gríðarleg, en talið er að þeim fjölgi um tvo í hverri einustu viku. Fyrir tólf árum síðan voru kínverskir milljarðamæringar 16 talsins. Þeir eru hins vegar 373 í dag - næstum fimmtungur allra milljarðamæringa heimsins.
Hér má frekar fræðast um auðsöfnunarúttekt UBS.