Þetta sagði Hanna Katrín sem var á meðal gesta í Vikulokunum á Rás 1 í morgun en til umfjöllunar var meðal annars starfsumhverfið á Alþingi og í borgarstjórn. Það komst í hámæli þegar Stefán Eiríksson, borgarritari Reykjavíkurborgar, lýsti framgöngu kjörinna fulltrúa í borgarstjórn gagnvart starfsfólki borgarinnar.
Sjá nánar: Finnst Stefán Eiríksson vera að lýsa sjálfum sér með eiturummælum
Stjórn starfsmannafélags Ráðhúss Reykjavíkur hefur formlega óskað eftir því að starfsfólkið fái frið til að vinna vinnuna sína án þess að störf þess séu gerð tortryggileg og án þess að vera blandað í stjórnmálaumræðu. Í frétt RÚV kom fram að uppsagnir tveggja starfsmanna Reykjavíkurborgar á yfirstandandi kjörtímabili megi rekja beint til starfsumhverfisins í ráðhúsinu.
Hanna Katrín segist hreinlega verða döpur þegar hún hugsi um þann farveg sem málin eru komin í. Betra væri að leysa málin sín á milli, sé þess þörf, í stað þess að:
„hlaupa með gaspur og órökstuddar ásakanir í fjölmiðla með hótun um lögsóknir og annað. Þetta er bara svo galið að beita svona aðferðum. Hóta fólki út og suður með mannorðsmissi varðandi starfsöryggi og annað. Við verðum einfaldlega að stoppa þessa þróun og beina fólki sem telur sig eiga einhverra harma að herna í eðlilegan farveg með sín mál.“
Hanna Katrín segir að hér áður fyrr hefðu kannski nokkrir kjörnir fulltrúar freistast til að grípa til þess ráðs að blanda starfsfólki inn í pólitíska umræðu en munurinn sé sá að í dag sé þessi nálgun orðin kerfisbundin, að því er henni virðist.
„Í mínum huga lýsir þetta fullkominni málefnafátækt þeirra sem grípa til þessarar orðræðu – punktur – vegna þess að þannig fá þeir athygli og ef málefnin eru ekki til staðar til að fá athygli út á þá er farið þessa leið,“ segir Hanna Katrín.

Geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, tók undir með Hönnu Katrín og bætti við að lögum samkvæmt geti opinberir starfsmenn ekki varið sig út á við og þess vegna séu árásirnar enn ómaklegri fyrir vikið.„Viðkomandi starfsmenn geta aldrei tjáð sig eða varið sig með sama hætti. Kjörnir fulltrúar eru að ganga fram með óbilgirni, ósannmæli og svo framvegis,“ segir Rósa Björk.