Annars vegar er um að ræða deilu Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnulífsins og hins vegar deilu Landssambands íslenzkra verzlunarmanna við SA.
Aðspurð hvers vegna hún biður deiluaðila um að tjá sig ekki við fjölmiðla segir Bryndís að hún vilji að þeir einbeiti sér að verkefninu sem slíku fremur en umfjöllun út á við um viðræðurnar.
„Það eru fordæmi fyrir því að þetta sé gert. Það er í raun og veru til þess að skapa nauðsynlegan vinnufrið sem við teljum okkur þurfa næstu dagana. Það eru stífir vinnufundir framundan og ég vil að aðilar einbeiti sér að verkefninu sem slíku fremur en umfjöllun um viðræðurnar, og þetta er gjarnan gert í tengslum við samningaviðræður,“ segir Bryndís.
Vinnufundirnir hefjast strax á morgun
Fundað var hjá sáttasemjara í báðum deilunum í dag í fyrsta sinn. Bryndís segir að farið hafi verið yfir ýmis praktísk atriði og staðan tekin á deilunni eins og venja er.„Í kjölfarið á því lagði ég fram drög að vinnufundaáætlun sem hefst strax eftir hádegi á morgun og svo verður áfram gert ráð fyrir stífum vinnufundum inn í helgina og inn í næstu viku eins og þarf. Það var farið yfir það plan og þau fara heim með það verkefni að leggja upp skýra markmiðsáætlun fyrir þessa vinnufundi,“ segir Bryndís.
Eins og kunnugt er slitu VR, Efling, Verkalýðsfélag Akraness og Verkalýðsfélag Grindavíkur viðræðum sínum við SA í liðinni viku en þær höfðu farið fram undanfarið hjá ríkissáttasemjara.
Þó að viðræðunum hafi verið slitið er það svo samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur að sáttasemjari getur boðað deiluaðila til fundar á tveggja vikna fresti.
Bryndís segir að verið sé að leggja drög að því að boða fund í deilu félaganna fjögurra og SA en segist frekar eiga von á því að fundað verði í næstu viku frekar en þessari.
„En við gerum það náttúrulega í samráði við aðilana eftir því hvenær þeir eru tilbúnir til að koma til fundar.“