Gera nýja kvikmynd um Línu langsokk Margrét Helga Erlingsdóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa 2. október 2019 18:30 Lína langsokkur árið 1968 Getty
Í tilefni þess að á næsta ári verða 75 ár liðin frá því að fyrsta bókin um Línu langsokk kom út hafa þrjú fyrirtæki Studiocanal, Heyday films og Astrid Lindgren Company ákveðið búa til nýja kvikmynd um sterkustu stelpu í heimi. Undirbúningur við kvikmyndina er þegar þegar hafinn. Úr smiðju Studio Canal er kvikmyndin um Paddington bangsa og þá hefur Heyday tekið þátt í gerð kvikmyndanna um galdrastrákinn Harry Potter, Gravity og Once Upon A Time in Hollywood. Bækurnar um uppátæki og ævintýri Línu langsokk, Tomma og Önnu hafa verið þýddar á tugi tungumála og selst í milljónum upplaga. Bækurnar um hina rauðhærðu og sjálfstæðu Línu, sem lætur oft og tíðum illa að stjórn, halda áfram að skemmta nýjum kynslóðum og á næsta ári í formi kvikmyndar. Nils Nyman, barnabarn hinnar sænsku Astrid Lindgren og framkvæmdastjóri samnefnds fyrirtækis, segist loksins hafa fundið teymi sem skilur til fulls gildi Línu langsokks. Teymið sé fært um að fanga bæði léttleikann og kímnina en ekki síður hinn alvarlegri tón í verkum ömmu hans. „Við erum ánægð og spennt að kynna þetta samstarf,“ segir Nyman í fréttatilkynningu um myndina. David Heyman framleiðandi tekur undir þetta og segir að Lína hafi veitt fjölskyldum um allan heim innblástur. Fyrsta bókin um Línu langsokk, sem heitir á íslensku fullu nafni Sigurlína Rúllugardína Nýlendína Krúsimunda Efraímsdóttir langsokkur, kom út þann 26. nóvember árið 1945.
Bíó og sjónvarp Svíþjóð Tengdar fréttir Leiðin fram á við er að setja börnin alltaf í öndvegi Gunnar Helgason, barnabókahöfundur og leikari, hefur framleitt efni fyrir börn í áraraðir og hann er með sterkar skoðanir á málefnum barna hvort sem varðar listir eða önnur mál. Gunnar segir að við eigum að hafa hátt börnum til varnar og samfélaginu til góðs. 22. júlí 2017 09:00 Var Lína Langsokkur í ár eftir fyrstu leikhúsferð Salka Guðmundsdóttir hafði gaman af að láta aðeins hræða sig þegar hún var barn. Leikrit hennar Skúmaskot, sem frumsýnt er í Borgarleikhúsinu á morgun, er fyrir slíka krakka. 6. janúar 2018 10:45 Lína Langsokkur í einn dag Hún Erla María Magnúsdóttir lék titilhlutverk í sýningu Rimaskóla á Línu Langsokki sem sett var upp í skógarrjóðri í liðinni viku. 12. júní 2016 09:30 Mest lesið Villi Vill segir Gísla Örn gera stór mistök Lífið „Það var eiginlega ég sem bað hann um að giftast mér, held ég“ Lífið Kolbeinn Sigþórsson selur útsýnisíbúð á Kársnesinu Lífið Fékk yfir sig olíugusu við tökur á sjónvarpsþáttum Bíó og sjónvarp „Hugsuðum hver andskotinn væri í gangi“ Lífið Bara með bótox og biður um að vera látin í friði Lífið „Þarna fékk ég að kynnast því hvað þunglyndi er“ Lífið Sleit sambandinu með símtali Lífið Heiðar Logi og Anny Björk eiga von á barni Lífið FM Belfast fékk blessun Greifanna fyrir síðsumarsmelli Tónlist Fleiri fréttir Fékk yfir sig olíugusu við tökur á sjónvarpsþáttum Robert Downey Jr snýr aftur í Marvel-heima Stikla úr ungstjörnumyndinni sem sló í gegn í Cannes „Það er frábært bíóveður“ Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Tobey Maguire er á landinu Fyrsta stiklan úr Gladiator II Jon Landau er látinn Brad Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira
Leiðin fram á við er að setja börnin alltaf í öndvegi Gunnar Helgason, barnabókahöfundur og leikari, hefur framleitt efni fyrir börn í áraraðir og hann er með sterkar skoðanir á málefnum barna hvort sem varðar listir eða önnur mál. Gunnar segir að við eigum að hafa hátt börnum til varnar og samfélaginu til góðs. 22. júlí 2017 09:00
Var Lína Langsokkur í ár eftir fyrstu leikhúsferð Salka Guðmundsdóttir hafði gaman af að láta aðeins hræða sig þegar hún var barn. Leikrit hennar Skúmaskot, sem frumsýnt er í Borgarleikhúsinu á morgun, er fyrir slíka krakka. 6. janúar 2018 10:45
Lína Langsokkur í einn dag Hún Erla María Magnúsdóttir lék titilhlutverk í sýningu Rimaskóla á Línu Langsokki sem sett var upp í skógarrjóðri í liðinni viku. 12. júní 2016 09:30