Lífið

Þær kunnu söguna utan að

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sigurgeir að afhenda afastelpunum, Sögu Björgvinsdóttur, Lovísu Jarlsdóttur og Birtu Björgvinsdóttur, bókina. Sunna myndskreytir fylgist með.
Sigurgeir að afhenda afastelpunum, Sögu Björgvinsdóttur, Lovísu Jarlsdóttur og Birtu Björgvinsdóttur, bókina. Sunna myndskreytir fylgist með. Mynd/Óskar Pétur
Upphafið má rekja nokkra áratugi aftur í tímann. Þá var ég að hlusta á útvarpið og þar var verið að lesa sögu. Ég man ekkert lengur hver las en ég varð hrifinn af sögunni,“ segir Sigurgeir Jónsson, kennari í Vestmannaeyjum, er ég bið hann að segja frá tilurð nýrrar bókar sem hann á vissan heiður af. „Þetta var gamalt íslenskt ævintýri, ég hef hvergi séð það á prenti en lagði það á minnið. Svo kom að því að ég fór að segja afadætrum mínum það á kvöldin, nennti ekki að lesa fyrir þær og vildi heldur segja frá. Sagan komst strax í uppáhald og ýtti Rauðhettu, Búkollu og Mjallhvíti út af borðinu. Alltaf vildu þær heyra af henni Helgu en kunnu söguna utan að.“

Sigurgeir segir Guðjón Inga í bókaútgáfunni Hólum hafa viljað gefa út söguna. „Ég fékk fimmtán ára frænku mína, sem heitir Sunna Einarsdóttir, til að myndskreyta hana. Hún er flink. Þetta er samt í fyrsta skipti sem hún teiknar svona myndir, yfirleitt er hún meira í fígúrum.“

Í nýju útgáfunni heitir sagan Munaðarlausa stúlkan og fjallar um litlu munaðarlausu stúlkuna Helgu sem er alin upp hjá vandalausum sem koma ekki vel fram við hana. „En Helga er góð við þá sem eru fátækir og eiga bágt og nýtur þess í sögulok,“ segir Sigurgeir. „Þetta er eitt af þessum góðu, sígildu ævintýrum. Þeim sem eru góðir við aðra er umbunað.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.