Yfirvöld í Bretlandi munu fljúga ferðamönnum á vegum Thomas Cook ferðaþjónustunnar aftur til Bretlands, ef ferðaþjónustan verður gjaldþrota. Rúmlega 150 þúsund breskir ferðamenn eru á ferðalagi á vegum Thomas Cook núna. Þetta segir Dominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands.
Raab sagði í samtali við breska ríkisútvarpið að neyðaráætlun væri tilbúin til að tryggja að enginn ferðamannanna yrði strandaður.
Hann sagði þó að ekki væru miklar líkur á því að ríkið kæmi fyrirtækinu til hjálpar. Ráðherrar gripu ekki bara inn í þegar fyrirtæki færu á hausinn nema það væri í þágu þjóðarhagsmuna.
Þá sagðist hann ekki vilja gera lítið úr neyðarfundinum sem er nú í gangi á milli Thomas Cook og stærstu hluthafa fyrirtækisins í Lundúnum.
Fjárhagslegir erfiðleikar hafa aukist hjá fyrirtækinu síðasta árið sem náðu hámarki í ágúst þegar stærsti hluthafi fyrirtækisins, kínverska fyrirtækið Fosun, lagði til áætlun um endurfjármögnun fyrirtækisins.
Bankar, sem lánað hafa Thomas Cook fé, vilja að fyrirtækið safni aukalegu fjármagni á næstu dögum, annars verður það gjaldþrota ef það nær ekki að fá auka innspýtingu sem heyrir upp á 200 milljón pund, sem nema rúmum 30 milljörðum íslenskra króna.
Verkalýðsfélag samgöngustarfsmanna í Bretlandi hvetur ríkið til að grípa inn í og koma í veg fyrir að fyrirtækið fari á hausinn, en ef fyrirtækið verður gjaldþrota gætu allt að 20.000 manns misst vinnuna og þar af 9.000 manns í Bretlandi sem flest eru í verkalýðsfélagi samgöngustarfsmanna.
