Lífið

Taylor Swift lenti í tveimur árekstrum á sama deginum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Taylor Swift lenti í tveimur árekstrum á einum degi.
Taylor Swift lenti í tveimur árekstrum á einum degi.
Söngkonan Taylor Swift var gestur hjá breska spjallþáttastjórnandanum Graham Norton á dögunum og sagði í þættinum frá því þegar hún lenti í tveimur bílslysum á einum degi.

Atvikin áttu sér stað þegar Swift var á forsíðu Rolling Stone og einnig í heljarinnar viðtali í blaðinu.

„Þegar maður fer í svona viðtal við Rolling Stone er maður með blaðamanninum í nokkra daga og það var rosalegur heiður fyrir mig að fá að vera á forsíðu Rolling Stone, eitthvað sem ég hafði alltaf stefnt að,“ segir Swift sem ætlaði sér sannarlega að vera besta útgáfan af sjálfri sér alla dagana með blaðamanninum.

„Ég ákvað einn daginn að taka blaðamanninn með mér allt sem ég fór og keyrði með hann með mér á æfingar og fleira. Bara venjulegur dagur. Ég var svo stressuð að vera alltaf besta útgáfan af sjálfri mér að ég lenti í tveimur árekstrum sama daginn með blaðamanninn í bílnum.“

Hér að neðan má sjá brot úr viðtalinu við Swift.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.