Skoðun

Jafnrétti í forystu

Þorsteinn Víglundsson skrifar
Það er margt sem við Íslendingar getum verið stolt af í jafnréttismálum. Við höfum trónað á toppi WEF-listans í jafnrétti kynjanna í áratug. Hér er atvinnuþátttaka kvenna mjög mikil og launamunur kynjanna hefur farið minnkandi. Með lögbindingu jafnlaunavottunar, undir forystu Viðreisnar, gerðumst við brautryðjendur á heimsvísu í baráttunni gegn kynbundnum launamun. Fjölmörg ríki huga nú að svipuðum aðgerðum og m.a. er samnorræn jafnlaunavottun á vegum Norðurlandaráðs í undirbúningi.

Enn er þó mikið verk óunnið. Konur njóta ekki framgangs á vinnumarkaði til jafns við karla. Engin kona stýrir nú skráðu hlutafélagi og aðeins 22% starfandi fyrirtækja er stýrt af konum. Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja er aðeins 26%, þrátt fyrir lög um kynjakvóta. Konum á þingi fækkaði verulega í síðustu þingkosningum og vinnumarkaður okkar er kynskiptari en vinnumarkaðir nágrannalanda okkar. Þá njóta vel menntaðar kvennastéttir ekki menntunar sinnar í launum.

Við tölum um að framtíðin byggist á þekkingu en samt er kennaramenntun sú háskólamenntun sem er hvað minnst metin til launa. Laun hjúkrunarfræðinga virðast heldur ekki samkeppnishæf. Og furðulegt nokk vantar hæft og menntað starfsfólk í báðar þessar stéttir. Síðast en ekki síst er kynbundið ofbeldi hér enn viðvarandi vandamál. Við verðum að gera betur. Metnaðarleysi núverandi ríkisstjórnar veldur vonbrigðum. Eitt fyrsta verk hennar var að fresta innleiðingu jafnlaunavottunar. Þá vatnaði meirihlutinn út þingsályktun þingmanna Viðreisnar og fleiri um þjóðarsátt um bætt kjör kvennastétta. Svar fjármálaráðherra við fyrirspurn minni í vikunni um hvað ríkisstjórnin hefði gert í málinu á þeim níu mánuðum sem liðnir eru var í stuttu máli: Ekkert – þó vissulega sett fram í nokkru lengra máli.

Þótt jafnrétti snúist auðvitað fyrst og síðast um sjálfsögð mannréttindi felur það líka í sér efnahagslega skynsemi. Nýleg skýrsla OECD og Norrænu ráðherranefndarinnar sýnir að jafnrétti hefur skilað Norðurlöndunum miklum hagvexti vegna aukinnar atvinnuþátttöku kvenna. Við erum auðugri þjóðfélög fyrir vikið. Forskoti okkar verður ekki viðhaldið með aðgerðarleysi. Við getum og eigum að gera enn betur. Til hamingju með alþjóðlegan baráttudag kvenna.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×