Sport

Óttast handtöku fyrir að keppa í stuttbuxum og hlýrabol

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sadaf Khadem í bardaganum um helgina
Sadaf Khadem í bardaganum um helgina mynd/bbc/reuters
Fyrsta íranska konan til þess að keppa í hnefaleikum hættir sér ekki til heimalandsins vegna þess að búið sé að gefa út handtökuskipan á hana.

Sadaf Khadem vann hina frönsku Anne Chauvin í hnefaleikabardaga um helgina og varð um leið fyrsta konan frá Íran til þess að keppa í opinberum hnefaleikabardaga.

Hún ætlaði að ferðast aftur til heimalandsins í vikunni en hætti við það eftir að hún komst að því að búið væri að gefa út handtökuskipan á hana. BBC greinir frá þessu en írönsk stjórnvöld hafa ekki staðfest að hvort handtökuskipan hafi í raun verið gefin út.

„Ég barðist í löglegum bardaga í Frakklandi. En þar sem ég var í stuttbuxum og bol, sem heimsbyggðinni finnst fullkomlega eðlilegt, braut ég gegn reglum heimalandsins,“ sagði Khadem við franska blaðið L'Equipe.

„Ég var ekki með hijab og ég er þjálfuð af karlmanni. Sumir sjá þetta mjög svörtum augum.“

Íranska hnefaleikasambandið sagði í tilkynningu á mánudag að það hafi ekki skipulagt neina bardaga fyrir konur en sé ekki ábyrgt fyrir gjörðum einstakra hnefaleikakappa. Hins vegar ítrekaði sambandið að íranskar íþróttakonur ættu að fara eftir lögum landsins um hijab.

Samkvæmt lögum landsins eiga allar konur og stelpur allt niður í níu ára aldur að ganga með hijab á almannafæri. Séu þær reglur brotnar þá getur refsingin verið allt að tveggja mánaða fangelsisvist.

Þá eiga íranskar íþróttakonur að hylja hár, háls, hendur og fætur þegar þær keppa.

Khadem hefði verið í nokkrum vandræðum með það hverju hún ætti að klæðast í bardaga, og í raun hefði hún ekki getað keppt nema brjóta einhver lög, þar til nýlega. Það var nefnilega ekki leyfilegt að keppa í hnefaleikum með hijab eða í heilgalla þar til í lok febrúar þegar alþjóða hnefaleikasambandið breytti reglum sínum.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×