Alfreð getur náð í titil í síðasta Evrópuleiknum með Kiel Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. maí 2019 11:31 Alfreð hættir með Kiel eftir tímabilið. vísir/getty
Alfreð Gíslason stýrir Kiel í síðasta sinn í Evrópuleik þegar liðið mætir Füchse Berlin í úrslitaleik EHF-bikarsins í kvöld. Leikið er í Sparkassen-Arena í Kiel.Strákarnir hans Alfreðs tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með sigri á Team Tvis Holstebro, 26-32, í gær.Füchse Berlin vann Porto, 24-20, í hinum undanúrslitaleiknum. Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk fyrir Berlínarrefina. Sem kunnugt er hættir Alfreð sem þjálfari Kiel í sumar. Hann hefur verið hjá félaginu síðan 2008. Kiel varð þýskur bikarmeistari í síðasta mánuði og á enn möguleika á að vinna þýska meistaratitilinn. Alfreð getur því kvatt Kiel með þremur titlum. Kiel er tveimur stigum á eftir Flensburg þegar þrjár umferðir eru eftir af þýsku úrvalsdeildinni. Kiel hefur þrisvar sinnum unnið EHF-bikarinn; 1998, 2002 og 2004. Füchse Berlin vann keppnina í fyrra og 2015 undir stjórn Dags Sigurðssonar. Alfreð hefur áður unnið EHF-bikarinn en hann stýrði Magdeburg til sigurs í keppninni 2001. Ólafur Stefánsson lék með Magdeburg á þeim tíma. Ári síðar vann liðið Meistaradeild Evrópu undir stjórn Alfreðs. Akureyringurinn hefur alls unnið fjóra Evróputitla sem þjálfari og getur bætt þeim fimmta við í kvöld.
Handbolti Mest lesið Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Enski boltinn Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Enski boltinn Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Fótbolti Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Enski boltinn Butler sagður vilja burt frá Miami sem fyrst Körfubolti Dagskráin í dag: Pílan hefst aftur eftir hlé Sport Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Enski boltinn Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Enski boltinn Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Enski boltinn Fleiri fréttir Ólafi tvisvar vikið af velli og ekkert skorað síðustu tvær mínúturnar Viggó færir sig um set á nýju ári Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Sjá meira