Tónlist

Föstudagsplaylisti Lóu Hjálmtýsdóttur

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir.
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir. fbl
Söngkona FM Belfast og mögulega skemmtilegasti myndasöguhöfundur Íslands, Lóa Hjálmtýsdóttir, lagaði föstudagskaffi fyrir lesendur Vísis í formi lagalista.

„Það eina sem er á döfinni í nánustu framtíð er opið karókíkvöld í lok janúar á Húrra með Two Non Blondes sem eru Sandra Barilli og ég,“ sagði Lóa aðspurð út í hvað væri framundan hjá henni. Nafn kvöldsins er þá augljóslega tilvísun í stakslagarasveitina 4 Non Blondes. Umrætt karókíkvöld fór fram í gærkvöldi en hver veit nema þetta verði reglulegur viðburður.

Myndasögur hennar Lóaboratoríum birtast þó reglulega í Grapevine og á samfélagsmiðlum hennar, en FM Belfast hafa ekki tilkynnt um nein tónleikaferðalög á næstunni.

Listinn er „að mestu leyti afslappað drama og svo lög til að lifa sig inn í á meðan maður tekur til eða grætur með besta vini sínum,“ að sögn Lóu.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.