Stærsti flokkur katalónskra aðskilnaðarsinna hefur samþykkt að styðja nýja stjórn spænskra sósíalista í skiptum fyrir viðræður um sjálfstæði héraðsins.
BBC greinir frá því að 95 prósent þeirra flokksmanna Esquerra Republicana de Catalunya (ERC) sem greiddu atkvæði hafi lýst yfir stuðningi við tillöguna.
ERC er einn þeirra flokka sem er í oddastöðu á spænska þinginu eftir kosningarnar fyrr í mánuðinum þar sem Sósíalistaflokki Pedro Sanchez, starfandi forsætisráðherra, mistókst að ná meirihluta. Spænskir fjölmiðlar segja að fulltrúar ERC ætli nú að hefja viðræður við Sósíalista um mögulegan stuðning við stjórn Sanchez.
Sósíalistar vinna nú að því ásamt Podemos-flokknum að mynda nýja stjórn. Saman eru flokkarnir tveir með 155 þingsæti, en 176 krefst til þess að vera með meirihluta á þinginu. Þingflokkur ERC telur þrettán þingmenn. Takist Sanchez að fá einhvern af smærri vinstriflokkunum eða þjóðernisflokki Baska einnig að borðinu gæti hann því leitt ríkisstjórn áfram. Sanchez tók við embætti forsætisráðherra Spánar í júní 2018.
Sósíalistaflokkurinn hefur talað gegn því að veita Katalónum löglega þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Þó hefur flokkurinn viðurkennt að bæði Katalónía og Baskaland séu ekki einungis héröð, heldur lifi þar sérstakar þjóðir.
Oriol Junqueras er leiðtogi ERC, en Junqueras var dæmdur í fangelsi í haust fyrir aðkomu sína að þjóðaratkvæðagreiðslunni í Katalóníu árið 2017 sem dæmd var ólögleg. ERC er jafnaðarmannaflokkur og hlaut þremur þingsætum fleiri en hægrisinnaði aðskilnaðarflokkur Katalóna, Junts per Catalunya.
Kosningarnar á Spáni fyrr í mánuðinum voru þær fjórðu í landinu á fjórum árum og aðrar kosningarnar á þessu ári. Hægriflokkar bættu við sig fylgi, sérstaklega hægriöfgaflokkurinn Vox, en Sósíalistaflokkurinn er þó áfram stærstur á þingi.
Ný könnun á vegum héraðsstjórnar Katalóníu bendir til að dregið hafi úr stuðningi við sjálfstæði héraðsins. Þannig segjast 48,8 prósent aðspurðra vera mótfallin sjálfstæði, en 41,9 prósent fylgjandi.
Katalónskir aðskilnaðarsinnar opna á stuðning við stjórn sósíalista

Tengdar fréttir

Sósíalistar stefna að því að mynda ríkisstjórn hratt
Þingkosningar sem áttu að binda enda á þrátefli á spænska þinginu leiddu aðeins fram enn frekari flokkadrætti en áður.

Sameinast um að mynda stjórn
Sósíalistaflokkurinn og Podemos hafa náð samkomulagi um að mynda ríkisstjórn á Spáni. Eftir kosningarnar sem fram fóru sunnudaginn 10. nóvember vantar þá þó enn um 20 þingmenn til að ná meirihluta á þinginu.