Tónlist

Baggalútur sendir frá sér nýtt aðventulag

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Í myndbandinu bregður Guðmundur Pálsson sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa.
Í myndbandinu bregður Guðmundur Pálsson sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa. Mynd/Skjáskot
Hljómsveitin Baggalútur hefur sent frá sér myndband við nýja aðventulagið Afsakið þetta smáræði. Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason. Ágúst Bent leikstýrði myndbandinu en það var tekið upp skíðaskálanum í Hveradölum. Lagið kemur svo á Spotify á miðnætti þriðjudaginn 3. desember.

„Þar bregður söngvarinn geðþekki, Guðmundur Pálsson, sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa, sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum, þó auðvitað sé alltaf nóg til frammi. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi,“ segir um myndbandið.

Á meðal matargesta eru Karl Sigurðsson, Bragi Valdimar Skúlason, Helgi Svavar Helgason, Karim Birimumaso, Ágúst Bent, Júlíus Róbertsson, Kristbjörn Helgason, Guðmundur Kristinn Jónsson og Jón Valur Guðmundsson. Aðrir gestir eru Bryndís Jakobsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Samúel Jón Samúelsson, Kjartan Hákonarson, Óskar Guðjónsson en Jakob Frímann Magnússon er titlaður heiðursgestur.


Tengdar fréttir

Jólatónleikar fyrir milljarð

Jólatónleikar og aðrir hátíðarviðburðir hafa aldrei verið fleiri á Íslandi en í ár. Áætlað heildarverðmæti miða nemur tæpum milljarði króna.

Frumsýning á nýju myndbandi með Baggalúti

Baggalút þarf vart að kynna fyrir fólki en sveitin hefur verið starfandi um margra ára bil og er ein vinsælasta hljómsveit landsins, og ber þess sérstaklega merki í desembermánuði þar sem jólatónleikar þeirra telja á tugum og allir smekkuppseldir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.