Fjögurra tíma íslensk fótboltaveisla á Stöð 2 Sport í dag Anton Ingi Leifsson skrifar 28. júlí 2019 12:00 KA og FH mætast í mikilvægum leik norðan heiða í dag. vísir/bára
Fjórir leikir fara fram í fjórtándu umferð Pepsi Max-deildar karla í dag en einn leikur hefst klukkan 16, einn klukkan 17 og tveir klukkan 19.15. Umferðin hefst í Grindavík með fallbaráttuslag. Heimamenn fá þá Eyjamenn í heimsókn en Grindavík hefur ekki unnið síðan 20. maí. Eyjamenn unnu síðast 2. júní. Bæði lið eru í mikilli fallbaráttu. Grindavík er í níunda sæti deildarinnar með fjórtán stig en Eyjamenn eru á botninum með fimm stig. Þeir þurfa nauðsynlega á þremur stigum að halda. KA og FH mætast á Akureyravelli. Bæði lið hafa verið í vandræðum. Fimleikafélagið er í fimmta sætinu eftir 2-0 skell gegn HK í síðustu umferð og KA er í fallsæti eftir þrettán umferðir. Íslandsmeistarar Vals eru í sjöunda sæti deildarinnar, þrettán stigum á eftir toppliði KR, en meistararnir heimsækja Skagamenn í dag. Nýliðarnir eru í þriðja sætinu með 22 stig en Valsmenn geta minnkað bilið milli sín og Skagans niður í tvö stig. Topplið KR fer svo í Árbæinn og mætir Fylkismönnum. KR er með sjö stiga forskot á toppnum en Fylkir er í fimmta sætinu með nítján stig. Leikur liðanna í fyrri umferðinni var dramatískur en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Á morgun eru svo tveir leikir. Víkingur fær Breiðablik í heimsókn og nýliðar HK freista þess að vinna sinn fjórða leik í röð er Stjarnan mætir í heimsókn. Pepsi Max-mörkin eru á dagskrá annað kvöld klukkan 21.15.Leikir dagsins: 16.00 Grindavík - ÍBV 17.00 KA - FH (Í beinni á Stöð 2 Sport 2) 19.15 ÍA - Valur (Í beinni á Stöð 2 Sport) 19.15 Fylkir - KR
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vilja senda allar íþróttakonur í kynjapróf Sport Haaland reiddist eftir samtal við Mbappé eftir leik Fótbolti David Moyes: „Það var við hæfi að þetta endaði svona“ Enski boltinn Kári fárveikur í HM-stofunni og endaði í hjartaþræðingu Handbolti Van Dijk: Þetta var bikarúrslitaleikur fyrir Everton Enski boltinn Rautt á Slot í hádramatísku jafntefli Enski boltinn Jón Axel raðaði niður þristunum í dýrmætum sigri Körfubolti Uppgjör: Grindavík - Álftanes 92-94 | Dúi hetjan í fjarveru NBA mannsins Körfubolti Guðlaugur Victor lagði upp mark Enski boltinn „Hefði verið algjörlega brjálaður ef dæminu hefði verið snúið við“ Handbolti Fleiri fréttir Herra Fjölnir tekur við Fjölni „Púsluspilið gekk ekki upp“ Víkingar hættir í Lengjubikarnum Ætla að spila í Grindavík: „Ábyrgð mín að koma liðinu heim“ Sif Atla ráðin framkvæmdastjóri Leikmannasamtaka Íslands Andri Rúnar með þrennu fyrir Stjörnuna í kvöld Þorri sagður á heimleið: „Verð þakklátur alla ævina“ Úlfur óvænt rekinn frá Fjölni Framarar fundu strax leið úr skammarkróknum Tvær þrennur í níu marka stórsigri Hrannar með þrennu gegn Þór Sjáðu sigurmark Örvars og önnur mörk úr Lengjubikarnum Íhugaði að lauma mynd af húsinu í myndaalbúm fjölskyldunnar ÍR vann níu FH-inga og Valskonur í stuði Hituðu upp fyrir Grikkina í snjónum: Danna þema hjá Víkingum Martraðarbyrjun Róberts í Víkingstreyjunni Einar heim í Hafnarfjörðinn Húsvíkingurinn frá KR til Þróttar Framarar lausir við Frambanann Cousins búin að semja við Þrótt FH hreppir Rosenörn og Kötlu Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita „Það fór eitthvað leikrit í gang“ Sjá meira