Tískuhönnuðurinn, listamaðurinn og rithöfundurinn Gloria Vanderbilt lést á mánudagsmorgun 95 ára að aldri. Þessu er greint frá á vef CNN en sonur hennar, Anderson Cooper, er án efa einn þekktasti þáttastjórnandi miðilsins og var það þess vegna viðeigandi að Cooper flutti fréttina sjálfur fyrir CNN, fyrst allra fréttaveita.
Vanderbilt lést á heimili sínu í New York, umkringd vinum og ættingjum, eftir baráttu við magakrabbamein, að sögn Coopers.
Gloria Vanderbilt var barnabarn eins mest áberandi viðskiptajöfurs 19. aldarinnar, Cornelius Vanderbilt, og erfði hún auð hans og eignir.
„Hún var 95 ára gömul en ef þú spyrð þá sem voru nánir henni verður þér sagt að hún hafi verið yngsta manneskjan sem þeir þekktu, sú svalasta og nútímalegasta,“ bætti Cooper við.
Gloria Vanderbilt látin 95 ára gömul
Pálmi Kormákur skrifar
