Skoðun

Tími til kominn

Sighvatur Arnmundsson skrifar
Höfuðborgarsvæðið hefur allt of lengi setið á hakanum þegar kemur að samgönguframkvæmdum. Þess vegna er samkomulag ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stórfellda uppbyggingu á næstu fimmtán árum jákvætt og löngu tímabært skref. Hér er um að ræða fjölbreyttar aðgerðir sem ætlað er að taka á ýmsum þáttum í samgöngumálum svæðisins.

Sérstakt ánægjuefni er að þessir aðilar hafi náð saman um Borgarlínu og að hefja eigi framkvæmdir strax. Þannig á fyrstu áföngum Borgarlínu að vera lokið árið 2023 en alls mun tæpum 50 milljörðum verða varið til verkefnisins á tímabilinu. Tilkoma Borgarlínu er nauðsynleg forsenda uppbyggingar samgöngukerfis framtíðarinnar sem mun byggja á umhverfisvænum lausnum. Þess vegna er einnig ánægjulegt að verja eigi rúmum átta milljörðum til að bæta innviði fyrir gangandi og hjólandi.

Þá sér loks fyrir endann á lagningu hluta Miklubrautar í stokk en slík áform var meðal annars að finna í aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016. Miðað við samkomulagið er nú gert ráð fyrir að verkefninu verði lokið árið 2026. Hér er um mikilvæga framkvæmd að ræða sem mun bæta lífsgæði íbúa á svæðinu svo um munar. Þó veldur það vonbrigðum að Sundabraut sé ekki hluti samkomulagsins en aðeins er minnst á þá framkvæmd í upptalningu verkefna sem áformað sé að fjármagna með sértækri gjaldtöku.

Miðað við þá umræðu sem skapaðist um samgönguáætlun og veggjöld síðasta vetur liggur það fyrir að fjármögnunin verður alltaf umdeild. Nú er gert ráð fyrir að 60 milljarðar, eða helmingur þess fjármagns sem er undir í samkomulaginu, komi í gegnum flýti- og umferðargjöld. Útfærslur liggja enn ekki fyrir en gera má ráð fyrir því að veggjöld verði tekin upp í einhverri mynd. Ríkið hefur heldur ekki útilokað að fjármagna hluta þessara 60 milljarða með öðrum leiðum eins og eignasölu.

Það er mikilvægt að stjórnmálamenn hugi að jafnræði íbúa landsins þegar kemur að veggjöldum og tryggi um leið að þessi gjöld verði fyrst og fremst hugsuð sem viðbrögð við breytingum í samgöngukerfinu. Vistvænum bílum fjölgar hratt og þar með munu gjöld á jarðefnaeldsneyti, sem notuð hafa verið til að fjármagna framkvæmdir í vegakerfinu, dragast saman.

Samkvæmt samkomulaginu verða allir mögulegir kostir við útfærslu gjaldtöku skoðaðir ítarlega. Þar er mikilvægt að horfa til þeirra fjölmörgu nágrannaríkja sem farið hafa svipaða leið. Eins og haft var eftir borgarstjóra í Fréttablaðinu í gær þá er á þessu stigi málsins ótímabært að taka afstöðu til einstakra hugmynda. Það verkefni bíður komandi vetrar.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×