Elvar setti íslenskt stigamet á Smáþjóðaleikunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2019 20:00 Elvar Már Friðriksson. Mynd/KKÍ
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson var frábær með íslenska körfuboltalandsliðinu á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi og setti nýtt stigamet. Elvar Már skoraði 84 stig í leikjunum fjórum eða 21,0 stig að meðaltali í leik. Hann er aðeins þriðji íslenski körfuboltamaðurinn sem nær að skora yfir tuttugu stig að meðaltali í leik á Smáþjóðaleikunum. Elvar bætti met þeirra Guðmundar Bragasonar og Herberts Arnarsonar sem báðir náðu að skora 20 stig að meðaltali í leik á Smáþjóðaleikunum, Guðmundur fyrst í Lúxemborg 1995 og Herbert svo á Íslandi tveimur árum síðar. Guðmundur Bragason er áfram sá sem hefur skorað flest heildarstig á einum Smáþjóðaleikum en hann skoraði 97 stig í 5 leikjum á leikunum á Möltu árið 1993. Logi Gunnarsson var tveimur stigum frá því að jafna það met í fimm leikjum á Smáþjóðaleikunum í San Marinó árið 2001. Elvar Már var einnig með 6,0 fráköst og 5,5 stoðsendingar að meðaltali í leik auk þess að setja niður 3,3 þrista að meðaltali í leik og hitta úr 95 prósent vítaskota sinna. Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann 2 af 4 leikjum sínum og tryggði sér bronsverðlaun.Flest stig í leik fyrir íslenska karlalandsliðið í körfubolta á einum Smáþjóðaleikum: 21,0 - Elvar Már Friðriksson, 2019 20,0 - Guðmundur Bragason, 1995 20,0 - Herbert Arnarson, 1997 19,7 - Valur Ingimundarson, 1989 19,4 - Guðmundur Bragason, 1993 19,3 - Teitur Örlygsson, 1995 19,0 - Logi Gunnarsson, 2001 17,5 - Magnús Þór Gunnarsson, 2005 17,4 - Brenton Birmingham, 2007 17,4 - Damon Johnson, 2003 17,3 - Teitur Örlygsson, 1989 17,2 - Herbert Arnarson, 1997
Körfubolti Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Dagskráin í dag: Blikar í Evrópu, Suðurnesjaslagur og van Gerwen mætir til leiks Sport Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira