Bíó og sjónvarp

Samherji hrærði í Skaupinu

Sylvía Hall skrifar
Handritshöfundateymi Skaupsins í ár.
Handritshöfundateymi Skaupsins í ár.
Óhætt er að segja að umfjöllun um mál Samherja í Namibíu og ásakanir um að fyrirtækið hafi borið fé á namibíska embættismenn til að komast yfir kvóta þar í landi sé nú þegar orðin að einu stærsta máli ársins þegar stutt er eftir af árinu 2019. Tímasetningin vekur athygli fyrir þær sakir að málið kemur upp á svipuðum tíma og hið fræga Klaustursmál í fyrra, einmitt þegar verið er að leggja lokahönd á Áramótaskaupið.

„Þetta hrærði í okkur eins og örugglega flestum. Það eru ýmsar hugmyndir komnar upp en það er engin krísa,“ segir Reynir Lyngdal, leikstjóri Skaupsins, í samtali við Vísi. Teymið hafi lært af þeim sem sáu um Skaupið í fyrra þegar Klaustursmálið kom upp.

„Út af þessu sem gerðist í fyrra og hefur gerst áður þá erum við með plan ef eitthvað svona skyldi gerast,“ segir Reynir og vísar þar til þess þegar handritshöfundateymi síðasta árs þurfti skyndilega að bregðast við upptökum af samtali þingmannanna á Klaustur. Arnór Pálmi Arnarson, leikstjóri Skaupsins í fyrra, sagði tímasetninguna vera óheppilega þar sem tökur væru komnar vel á veg.

Sjá einnig: „Væri hægt að sýna annálinn þegar Skaupið á að vera“

Reynir segir Skaupið enn vera í fullri vinnslu og stefnt er að því að ljúka tökum í byrjun desember. Hann bendir á að ekki sé útilokað að fleiri stórmál komi upp og því sé teymið undir allt búið.

Reynir Lyngdal, leikstjóri Skaupsins í ár.
„Við í Skaupinu erum undirbúin. Við lifum ekki í þeirri lygi að Ísland sé hundrað prósent saklaust.“

Áramótaskaupið er vafalaust vinsælasta sjónvarpsefni ársins og stór hluti af áramótum allra Íslendinga. Þrátt fyrir að allra augu séu á Skaupinu segist Reynir ekki vera með magasár yfir verkefninu, allavega ekki enn sem komið er.

„Maður náttúrulega fer ekki út í að gera áramótaskaupið ef maður er mikið að pæla í hvað öðrum finnst,“ segir Reynir léttur og bætir við að markmiðið sé fyrst og fremst að skemmta landsmönnum.

„Vonandi á þetta eftir að gleðja og skemmta fólki um áramótin.“


Tengdar fréttir

Samherjamálið skref fyrir skref

Samherjaskjölin sem birt voru á vef WikiLeaks í gær, og voru til umfjöllunar í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í gærkvöldi og í dagblaðinu Stundinni, hafa vakið mikla athygli – og gríðarleg viðbrögð í íslensku samfélagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.