36 ára gamall litháískur framherji að nafni Valdas Vasylius mun leika með Grindvíkingum en hann kemur til liðsins frá litháíska B-deildarliðinu Silute þar sem hann hefur skorað 17,8 stig að meðaltali í fyrstu fjórum leikjunum á yfirstandandi leiktíð.
Valdas er 203 sentimetrar á hæð og hefur farið víða á löngum atvinnumannaferli. Hann hefur meðal annars leikið í Grikklandi, Póllandi, Rússlandi og Úkraínu auk þess sem hann lék í háskólaboltanum í Bandaríkjunum á árum áður.
Grindavík heimsækir Hauka í 3.umferð Dominos deildarinnar annað kvöld en Grindvíkingar töpuðu fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni, gegn Keflavík og KR.