Lífið

Brad Pitt og Jenni­­fer Ani­­ston sögð elska hvort annað

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Jennifer og Brad á frumsýningu The Mexican árið 2001.
Jennifer og Brad á frumsýningu The Mexican árið 2001. getty/Kevin Winter

Jennifer Aniston og Brad Pitt eru sögð elska hvort annað og treysta hvort öðru á ný en fimmtán ár eru liðin frá því að þau skildu. Þau giftust á Malibu árið 2000 og voru eitt heittelskaðasta par Hollywood á sínum tíma.

Eftir að Brad lék í myndinni Mr and Mrs Smith með Angeliu Jolie slitnaði upp úr sambandi þeirra og þau skildu að lokum árið 2005.

„Þau hafa byggt upp sambandið á ný og eru orðnir mun betri vinir en þau hafa verið síðustu ár nú þegar þau eru bæði einhleyp,“ sagði heimildarmaður í samtali við Hollywood Life.

„Þau hafa áttað sig á því hvað skiptir máli og það er svo gaman að sjá hvað þau eru orðnir góðir vinir aftur því þau elskuðu hvort annað svo heitt,“ sagði heimildarmaðurinn. „Þau treysta hvort öðru og eru ánægð að eiga einhvern að sem er alltaf til staðar.“

Brad og Angelina hafa alltaf neitað því að hafa átt í sambandi við tökur á Mr and Mrs Smith en þau byrjuðu saman stuttu eftir að Brad og Jennifer skildu. Þau skildu svo árið 2016 eftir tólf ára samband og tveggja ára hjónaband. Þau eiga saman sex börn á aldrinum tíu til sautján ára, þau Maddox, Pax, Zahara, Shiloh, Vivienne og Knox.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.