Lífið

Dylan Sprouse nýtur lífsins á Íslandi

Sylvía Hall skrifar
Sprouse ferðaðist um suðurhluta landsins í gær.
Sprouse ferðaðist um suðurhluta landsins í gær. Instagram

Leikarinn og barnastjarnan Dylan Sprouse hefur verið staddur hér á landi undanfarna daga. Hann virðist ætla að drekka í sig íslenska náttúru og menningu á meðan dvölinni stendur ef marka má færslur hans á Instagram.

Á fimmtudag fór leikarinn að birta myndir á samfélagsmiðlum frá Íslandi og kíkti hann meðal annars á veitingastaðinn Icelandic Street Food. Þar var hann ásamt eigandanum Unnari Helga Daníelssyni Beck.

Þá kíkti Sprouse meðal annars á Seljalandsfoss og í Kirkjufjöru í gær. Þar birti hann myndir af sér þar sem hann hélt á lítilli mynd af sér og kærustu sinni, fyrirsætunni Barböru Palvin, sem virðist ekki hafa komið með honum í þetta skiptið.

Instagram

Leikarinn endaði kvöldið á grínklúbbnum Secret Cellar í Lækjargötu.

Sprouse-bræður virðast afar hrifnir af landi og þjóð en fyrr á árinu var tvíburabróðir Dylan, Cole, hér á landi og tók meðal annars þátt í myndatöku með ítalska útivistar- og lífstílsfyrirtækinu Moncler.


Tengdar fréttir

Cole Sprouse staddur á Íslandi

Bandaríski leikarinn Cole Sprouse er staddur á Íslandi, ef marka má færslur hans á Instagram frá því í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.