Aprílspá Siggu Kling - Vatnsberinn: Mátt taka áhættu á þessu tímabili Sigga Kling skrifar 5. apríl 2019 09:00
Elsku Vatnsberinn minn, þú býrð yfir svo brennandi þrá til þess að skapa lífið og þorir að takast á við meiri áskoranir meira en meðalmaðurinn gerir. Það eru engin mistök fólgin í einu eða neinu á þessari jörð, þú þarft bara að nýta sköpunargáfu þína og viðskiptavit þá mun lífið laga sig að þér. Drífðu í því að koma hugmyndum þínum í framkvæmd og þá mun þér farnast vel. Þú mátt taka áhættu á þessu tímabili sem þú ert að fara inn í og ert búinn að vera í, og kannski svolítið mikla áhættu, en þú átt eftir að spekúlera og reikna út alveg réttan snúning á öllu. Eins og þú ert góður áheyrandi sem er svo heillandi, því þú elskar fólk og það sem er að gerast í kringum það, þá hefurðu líka kraft til að láta þína rödd heyrast því þú hefur svo djúpstæðar skoðanir og sterka tilfinningu fyrir lífinu. Það er svo mikilvægt fyrir þig að hafa allt í kringum þig, fjölskyldu þína, ástina, heimilið og hallærislega prjónaða teppið sem þú hefur elskað frá því þú varst barn. Þú heldur ríkt í hefðir og skapar líka nýjar. Þú ert að finna sátt og jafnvægi við sjálfan þig og sérð miklu skýrar þú hafir verið að gera rétt og eigir skilið að fagna og það kæmi mér ekki á óvart þú fengir einhverskonar verðlaun. Gættu þess að gera allt í jákvæðni, eins mikil klisja og það er virðist það opna fyrir þér gullæð af spennandi lífi og tækifærum. Þessi dásamlega framkoma þín gerir það að verkum að fólk opnar sig fyrir þér, enda ertu sálfræðingur frá innstu rótum og færð fólk alltaf til að fara í léttari gír. Þú munt eignast hinn fullkomna maka því þú ert heppinn í ástum og færð það sem þú vilt á endanum.Knús og kossar, þín Sigga KlingFrægir Vatnsberar: Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg, Andrea Róberts mannauður, Hilmar Hafsteinsson ofurfasteignasali, Rut Roberts flugfreyja hjá Icelandair, Ragnheidur Guðfinna sálfræðingur.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Maggie Smith er látin Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Lífið Fleiri fréttir Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur Sjá meira