Jól

Jólalag dagsins: Heims um ból með Jóhönnu Guðrúnu og Gospelkór Fíladelfíu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jóhanna Guðrún er ein allra besta söngkona landsins.
Jóhanna Guðrún er ein allra besta söngkona landsins.

Sjálfur aðfangadagur er runninn upp og landsmenn vonandi allir sem einn komnir í jólaskap. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Vísir hefur talið niður til jóla með fallegu jólalagi úr safni sínu á hverjum degi.

Þeirri niðurtalningu lýkur í dag og býður Vísir upp á lagið Heims um ból sem Jóhanna Guðrún flytur með Gospelkór Fíladelfíu. Upptakan er frá árlegum jólatónleikum í desember 2016.



×