Lífið

Tugþúsundir krefjast þess að Ísland verði rekið úr Eurovision

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hatari á sviðinu í Ísrael.
Hatari á sviðinu í Ísrael. Getty/Gui Prives
Hátt í þrjátíu þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftarsöfnun á vefsíðunni Change.org þar sem þess er krafist að Íslandi verði vikið úr Eurovision eftir að Hatari strengdi á milli sín fána Palestínu í beinni útsendingu á lokakvöldi keppninnar í Tel Aviv á laugardaginn.

Þegar þetta er skrifað hafa27.900 skrifað undir áskoruninaen ljóst er að töluverður gangur er á undirskriftasöfnunni sem hleypt var af stokkunum á laugardaginn.Í gær höfðu um átta þúsund mannsskrifað undir og á síðunni má sjá að á hverri mínútu bætast við undirskriftir.

Á síðu söfnunarinnar eru liðsmenn Hatara harðlega gagnrýndir fyrir gjörning sinn á laugardaginn.

Ekki er jafn mikill kraftur í sambærilegri undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að Ísrael verði sparkað úr Eurovision. Þegar þetta er skrifað hafa 2.941 skrifað undir áskorun þess efnis sem er samhljóða kröfu þeirra sem vilja að Íslandi verði vísað úr Eurovision, nema búið er að skipta út Íslandi fyrir Ísrael.

Ekki liggur fyrir hvort Hatara eða RÚV verði refsaðvegna gjörningsins en fram hefur komið að á næsta fundi framkvæmdastjórnar keppninnar verði fjallað u, gjörninginn, eftir tvær vikur.

Svo virðist einnig sem að starfsmenn ísraelska flugfélagsins El AL hafi náð að hefna sín á meðlimum Hatara en liðsmenn Hatara, þeir Matthías Tryggvi Haraldsson, Einar Stefánsson og Klemens Hannigan Nikulásson, voru settir aftast fyrir miðju í flugi ísraelska flugfélagins EL AL frá Tel Aviv til London í morgun,líkt og kom fram á Vísi í dag.


Tengdar fréttir

Þúsundir krefjast þess að Ísland verði rekið úr Eurovision

Yfir átta þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftarsöfnun á vefsíðunni Change.org þar sem þess er krafist að Íslandi verði vikið úr Eurovision eftir að Hatari strengdi á milli sín fána Palestínu í beinni útsendingu á lokakvöldi keppninnar í Tel Aviv í gær.

EBU segir tvær vikur í ákvörðun hugsanlegrar refsingar vegna Hatara

Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) ákveður ekki fyrr en eftir tvær vikur mögulega refsingu vegna framkomu Hatara í úrslitum Eurovision keppninnar á laugardag. Á næsta fundi framkvæmdastjórnar keppninnar verður fjallað um að liðsmenn Hatara veifuðu borðum í fánalitum Palestínu í sjónvarpsútsendingu keppninnar.

Hatari fyrirferðarmikill hjá John Oliver

Þrátt fyrir að Bandaríkjamenn taki ekki þátt í Eurovision er ekki annað að sjá en að keppnin veki athygli vestanhafs - og ekki síst Hatari, fulltrúar Íslands í ár.

Ósammála um viðbrögð EBU varðandi uppátæki Hatara

Útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins telur litlar líkur á að Íslandi verði bannað að taka þátt í Eurovision á næsta ári vegna uppátækis Hatara í keppninni í ár. Fyrrverandi útvarpsstjóri telur þó líkur á að Ísland verði ekki með á næsta ári eftir að Hatari hélt uppi palestínska fánanum í útsendingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.