Bíó og sjónvarp

George Clooney til Íslands í haust

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Þetta bros hefur marga brætt í gegn um tíðina.
Þetta bros hefur marga brætt í gegn um tíðina. Vísir/Getty

Bandaríski leikarinn og hjartaknúsarinn George Clooney heldur  hingað til lands næsta haust en næsta kvikmyndaverkefni hans, Netflix-myndin, Good Morning, Midnight, verður að hluta til tekin upp hér á landi. Mun Clooney fara með aðalhlutverk og leikstjórn myndarinnar.

Myndin segir frá tveimur vísindamönnum sem reyna hvað þeir geta til þess að halda sambandi hvor við annan í heimi ólíkum þeim sem við þekkjum, þar sem myndin gerist eftir heimsendi, eins undarlega og það kann að hljóma.

Vísindamaðurinn sem Clooney leikur er þannig staðsettur á norðurhveli jarðar á meðan hinn er í geimfarinu Aether, sem flýtur stjórnlaust um geiminn. Vísindamennirnir tveir verða að vinna saman að því að ná markmiði sínu, sem er að komast aftur til annarra eftirlifenda heimsendis. Auk Íslands verður myndin líka tekin upp í Bretlandi.

Tökur á myndinni munu hefjast í október næstkomandi, ef marka má vefsíðuna Backstage.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.