Lífið

Svala skíthrædd í fyrsta þættinum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svala er fyrsti gesturinn í Næturgestum.
Svala er fyrsti gesturinn í Næturgestum.
Þeir Pétur Jóhann Sigfússon og Ragnar Eyþórsson fara af stað með nýjan þátt á mánudagskvöldið á Stöð 2 og nefnist þátturinn Næturgestir.

Fyrirkomulagið verður á þá leið að Pétur Jóhann mun gista með landsþekktum Íslendingi í draugahúsi yfir nótt og verður leitað að draugum. Fyrsti gesturinn er Svala Björgvinsdóttir.

Þau Pétur vörðu nótt saman á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og er óhætt að segja að Svala hafi ekki verið í rónni. 

Í þætti tvö fer Pétur Jóhann á Byggðasafnið í Görðum Akranesi og gistir þar með Sóla Hólm. Hér að neðan má sjá brot úr fyrsta þættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.