Sjá einnig: Ísraelskir fjölmiðlar rólegir yfir útspili Hatara og spá meira í Madonnu
Mona Berntsen, dansarinn sem hér á í hlut, greinir frá málinu á Instagram-reikningi sínum. Hún þakkar Madonnu fyrir að hafa gert sér kleift að lýsa yfir stuðningu við Palestínu í gærkvöldi og segir „kúgunina á Vesturbakkanum“ raunverulega.
„Klukkutímarnir eftir sýninguna í gær hafa verið spennuþrungnir en ég hefði ekki getað gert mér í hugarlund að fylgst skyldi með mér líkt og raunin varð,“ skrifar Berntsen í færslunni, þar sem hún birtir myndir af sér með fánann í atriðinu.
Hún lýsir því svo að vegabréf hennar hafi verið grandskoðað af mörgum starfsmönnum við innritun í flugið heim og þá hafi yfirmaður öryggismála á flugvellinum yfirheyrt hana í rúman einn og hálfan klukkutíma. Hún hafi verið látin fara með ævisögu sína, gefa upp ástæður fyrir ferðalögum sínum til Miðausturlanda og lýsa öllu sem hún tók sér fyrir hendur þegar hún heimsótti Jerúsalem fyrir þremur árum.
„Á leið minni ÚT úr landinu! Allt, að því er virðist, fyrir að bera fána sem hluta af sýningu, að lýsa yfir afstöðu í deilu, að stuðla að friði, einingu og frelsi.“
Færslu Berntsen má sjá hér að neðan.

Framkvæmdastjórn Eurovision sagði fánana ekki hafa verið sýnilega á æfingum fyrir kvöldið og ekki hafi fengist leyfi fyrir þeim. Brot úr atriði Madonnu, þar sem fánarnir sjást greinilega, má sjá í spilaranum hér að neðan.