Fótbolti

Mbappe var hetja PSG

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Kylian Mbappe
Kylian Mbappe vísir/getty
Kylian Mbappe var hetja PSG gegn Caen í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

PSG lenti undir í upphafi seinni hálfleiks þegar Casimir Ninga kom heimamönnum yfir.

Gestirnir fengu hins vegar vítaspyrnu stuttu seinna, Mbappe fór á punktinn og skoraði.

Það var svo hinn ungi Mbappe sem skoraði sigurmarkið á 87. mínútu leiksins.

PSG er með 20 stiga forskot á toppi Ligue 1 þegar 12 umferðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×