Lífið

Sigrid með tónleika hér á landi í desember

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigrid á heilan helling af aðdáendum hér á landi.
Sigrid á heilan helling af aðdáendum hér á landi.
Norska poppstjarnan Sigrid heldur tónleika á Íslandi laugardaginn 7. desember í Laugardalshöll en þetta kemur fram í tilkynningu frá Sena Live.

Sigrid hefur hún átt fjölmörg lög sem trónað hafa á toppnum á vinsældarlistum á Íslandi síðan hún skaust fram í sviðsljósið árið 2017 með lagið Don’t Kill My Vibe. Nú hefur hún gefið út sína fyrstu plötu, Sucker Punch, og fer í kjölfarið í heimstúr með sérstaka viðkomu á Íslandi.

Sigrid er 22 ára en lög af nýju plötunni á borð við High-Five og Sucker Punch hafa verið í spilun á útvarpsstöðvum og lagalistum um allan heim nýverið.

Hún hefur unnið til verðlauna á borð við BBC Sound of 2019, spilað á risa tónlistarhátíðum á borð við GlastonburyCoachella, og auðvitað á Iceland Airwaves árið 2017, þar sem hún sló í gegn, hitaði upp fyrir George Ezra og Maroon 5 og hefur sungið í geysivinsælum kvöldþáttum eins og Later…with Jools Holland og The Late Late Show with James Corden.

Hún er nú komin yfir 400 milljónir spilanir á streymisveitum og hefur fest sig rækilega í sessi sem ein mest spennandi rísandi stjarna sinnar kynslóðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.