Lífið

Dr. Dre dregur færslu um dóttur sína til baka eftir að upp komst um milljarða styrki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Truly Young  með föður sínum. Færslan hefur verið fjarlægð.
Truly Young með föður sínum. Færslan hefur verið fjarlægð.
„Dóttir mín komst inn í USC á eigin forsendum. Enginn á leiðinni í fangelsi,“ sagði rapparinn og athafnarmaðurinn Dr. Dre í færslu á samfélagsmiðlum en dóttir hans Truly Young fékk inngöngu inn í Háskólann í Suður-Kaliforníu á dögunum.

Mikið hefur verið fjallað um óeðlilega aðkomu frægra að því að koma börnunum sínum inn í Háskólanám í Bandaríkjunum.

Sjónvarpsleikkonur eins og Felicity Huffman og Lori Loughlin eru á meðal tuga manna sem hafa verið ákærðir fyrir að taka þátt í svikamyllu til að koma nemendum inn í nokkra virtustu háskóla Bandaríkjanna og svindla á inntökuprófum.

Dr. Dre hefur aftur á móti tekið færsluna út eftir að í ljós kom að hann og viðskiptafélagi rapparans Jimmy Iovine höfðu styrkt háskólanum um sjötíu milljónir dollara eða því sem samsvarar 8,5 milljarða íslenskra króna. TMZ greinir frá málinu. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.