Innlent

Þola margra daga flutninga í kulda

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Hér sést köngulóin sem fannst í Garðabæ í nóvember. Hún er með afar díl í laginu eins og stundaglas á maganum, sem er einkennandi fyrir svörtu ekkjuna.
Hér sést köngulóin sem fannst í Garðabæ í nóvember. Hún er með afar díl í laginu eins og stundaglas á maganum, sem er einkennandi fyrir svörtu ekkjuna. Mynd/Aðsend

Skordýr og köngulær sem koma hingað til lands með vörum frá heitari löndum geta mörg þolað margra daga flutninga í töluvert meiri kulda en þau eiga að venjast.

Þetta kom fram í máli Gísla Más Gíslasonar prófessors í líffræði í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Greint var frá því í morgun að sjö svartar köngulær með rauðum blettum hefðu borist Náttúrufræðistofnun til skoðunar á síðustu vikum. Þær skutu allar upp kollinum í vínberjaklösum sem fluttir voru til landsins frá Norður-Ameríku.

Ein köngulóanna reyndist vera ekkjukönguló, líkt og köngulóin sem fjallað var um í frétt Vísis í nóvember, en hinar voru af ætt stökköngulóa. Allar höfðu þær fengist í kaupbæti með amerískum vínberjum sem fólk hafði keypt í verslunum úr einni og sömu verslunarkeðjunni.

Bit veldur sársauka en er ekki lífshættulegt

Gísli Már benti á að þessi ferðamáti köngulóanna væri eðlilegur, og þá sér í lagi svörtu ekkjanna, þar sem heimkynni hennar eru einkum í Norður-Ameríku.

„Það er ekkert skrýtið að þetta komi með vínberjum sem flutt eru inn frá Kaliforníu því að búsvæði hennar í Bandaríkjunum er í Kaliforníu fyrst og fremst innan um vínberin. Það er hennar veiðistaður.“

Þá sagði hann svörtu ekkjuna ekki jafnhættulega og af er látið.

„Það er afar sjaldgæft að einhver láti lífið vegna bita frá henni. Það er veikt fólk og ungabörn. En þetta veldur sársauka en er ekki lífshættulegt. Hún er ekki árásargjörn og er ekki í hópi þeirra allra eitruðustu köngulóa.“

Sjá einnig: Flestar „ekkjurnar“ komið hingað með vínberjum

Þá var því velt upp í þættinum að vínber væru iðulega geymd í kæli. Lifa þessar köngulær slíka vist af?

„Já, skordýr jafnvel úr heitum löndum geta lifað um nokkurt skeið við kulda. Þegar þau komast aftur í hita, stofuhita, þá eru þau komin við Kaliforníuhita,“ sagði Gísli.

„Þannig að þau þola alveg flutninga niður í fjórar, fimm gráður í marga daga. Svo hlýnar þeim aftur þegar þau eru komin inn í stofuna og fara á kreik.“

Gísli benti jafnframt á að ef könguló birtist í vínberjapoka sé ráðlegt að koma henni í glas eða krukku. Þá megi fólk gjarnan fara með hana til Náttúrufræðistofnunar. Ef fólk lendi í því að vera bitið skuli það leita til læknis og helst taka köngulóna með sér á sjúkrahúsið.


Tengdar fréttir

Svarta ekkjan fékk orma að éta en var feimin

Síðasta sólahringinn hefur svarta ekkjan dvalið hjá ungu pari í Garðabænum og fengið orma að éta. Þau bíða eftir fulltrúa frá Mast sem fær henni annað heimili.

Telja sig hafa fundið svörtu ekkjuna í vínberjapoka

Finnendum köngulóarinnar brá þegar hún birtist á milli vínberjanna – og þeim varð svo ekki um sel þegar þeir komu auga á rauðan díl á búk dýrsins, einkennismerki hinnar banvænu ekkju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×