Innlent

Sjö svartar köngulær á aðventunni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hér sést köngulóin sem fannst í Garðabæ í nóvember og Vísir fjallaði um.
Hér sést köngulóin sem fannst í Garðabæ í nóvember og Vísir fjallaði um. Mynd/Aðsend

Sjö svartar köngulær með rauðum blettum hafa borist Náttúrufræðistofnun til skoðunar á síðustu vikum. Allar skutu þær upp kollinum í vínberjaklösum sem fluttir hafa verið inn til landsins en fjallað er um málið á vef Náttúrufræðistofnunar.

Þar er vísað í frétt Vísis frá 22. nóvember sem vakti mikla athygli. Þar sagði frá kaupendum vínberjapoka sem töldu sig hafa fundið svörtu ekkjuna í pokanum.

„Fáar köngulær vekja jafn mikinn ugg í hugum okkar Íslendinga og einmitt svartar ekkjur enda fara af þeim hryllingssögur. Fáir gera sér grein fyrir að þessi fræði eru ekki svona einföld.

Svarta ekkjan er nefnilega samheiti yfir margar af meira en þrjátíu tegundum ekkjuköngulóa af ættkvíslinni Latrodectus sem finnast víða um heim þar sem heittemprað og hitabeltisloftlag ríkir. Það er staðreynd að bit sumra tegundanna getur reynst varhugavert enda eitur þeirra öflugt,“ segir á vef Náttúrufræðistofnunar.

Of kalt til að ekkjuköngulær nái fótfestu hér á landi

Þar kemur jafnframt fram að loftslag hér á Íslandi er of kalt til þess að ekkjuköngulær fái þrifist og engar líkur séu því til þess að þær nái hér fótfestu.

Það hafi hins vegar gerst stundum að ekkjuköngulær berist til landsins með varningi, oftast vínberjum sem koma frá Norður-Ameríku. Alls þrettán eintök af þessari köngulóartegund eru varðveitt í safni Náttúrufræðistofnunar.

Á vef Náttúrufræðistofnunar segir að fyrrnefnd frétt Vísis hafi opnað augu fólks nú á aðventunni því fleiri svartar köngulær með rauðum blettum hafi komið upp úr vínberjapokum síðustu daga nóvembermánaðar og fram í desember:

„Þegar upp var staðið höfðu sjö slíkar borist okkur á Náttúrufræðistofnun til skoðunar. Ein þeirra reyndist vera ekkjukönguló (Latrodectus) eins og sú fyrstnefnda en hinar voru af áhugaverðri ætt stökkköngulóa.

Allar fundust þær á höfuðborgarsvæðinu og tilheyrðu tegund sem hafði ekki áður fundist hér á landi. Allar höfðu þær fengist í kaupbæti með amerískum vínberjum sem fólk hafði keypt í verslunum úr einni og sömu verslunarkeðjunni.

Þær vöktu nokkurn ugg, svartar á lit með rauða bletti, reyndar á baki en ekki kviði. Tegund þessi er algeng í Norður-Ameríku og hefur verið nefnd krúnukönguló (Phidippus audax).“


Tengdar fréttir

Telja sig hafa fundið svörtu ekkjuna í vínberjapoka

Finnendum köngulóarinnar brá þegar hún birtist á milli vínberjanna – og þeim varð svo ekki um sel þegar þeir komu auga á rauðan díl á búk dýrsins, einkennismerki hinnar banvænu ekkju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×