Ábyrgðarlaust að taka þátt ef við gætum ekki haldið keppnina
Skarphéðinn ræddi söngkeppnina, sem fer nú fram í Tel Aviv í Ísrael, í þættinum Reykjavík síðdegis í dag. Ísland komst áfram í aðalkeppnina á fyrra undankvöldi Eurovision í gær, í fyrsta sinn í fimm ár, og benda helstu spár til þess að hljómsveitinni Hatara muni farnast töluvert betur í keppninni en fulltrúum síðustu ára.
„Við erum með ákveðið aðgerðarplan sem segir til um það, sem svarar spurningunni Hvað ef? Hvað gerum við þá? Hvað fer í gang? Við teljum okkur vera með ákveðið plan í gangi,“ segir Skarphéðinn.
„Við höfum gert á þessu ákveðna úttekt og teljum okkur vera fullkomlega í stakk búin til að gera það. Og höfum átt í samtölum við forsvarsmenn keppninnar, markvisst með þetta í huga að geta brugðist við þessum aðstæðum, sem einhvern veginn virðast nær núna en oft áður.“
Blaðamannahöll og búningaaðstaða skilyrði
Tæknilega hlið keppninnar verði jafnframt ekki vandamál, stærri spurningin lúti að húsnæðinu sem uppfylla þurfi ýmis skilyrði.„Við höfum alveg gert úttekt á þessu og það eru nokkur sem koma til greina. Það eru augljósir kostir, það er Kórinn í Kópavogi, það er Egilshöllin og það eru þessar stærri íþróttahallir,“ segir Skarphéðinn.

Inntur eftir því hvað herlegheitin myndu kosta, og þá hvort Íslendingar og RÚV gætu staðið undir slíkum kostnaði, segir Skarphéðinn að of snemmt sé að segja til um verðmiðann. Keppnin gæti þó farið fram.
„Það ætti að vera hægt að halda þessa keppni þannig, með þeim árangri sem aðrir eru að gera. Ef vel verður haldið á spöðunum þá ætti þetta að geta komið út nokkurn veginn á sléttu.“

Notuðu tækifærið og skoðuðu aðstæður
Þá staðfestir Skarphéðinn að Jon Ola Sand, framkvæmdastjóri til Eurovision, hafi skoðað vænlegt húsnæði undir keppnina þegar honum var boðið til Íslands að vera viðstaddur úrslit Söngvakeppni sjónvarpsins í mars. Hann hafi verið afar hrifinn af Hatara – og jákvæður í garð húsakostsins.„Þetta er svo sem ekkert launungamál að Jon Ola Sand frá EBU kom og heimsótti okkur í vetur,“ segir Skarphéðinn.
„Við buðum honum til að vera með okkur þegar við héldum söngkeppnina og hann þáði það boð og að sjálfsögðu notuðum við tækifærið og könnuðum aðstæður. Og hann skoðaði þessar aðstæður, Kórinn og Egilshöll og fleiri staði, og það var ekki að sjá annað af hans viðbrögðum en að hann mæti það sem svo að við gætum hæglega haldið þessa keppni.“
Viðtalið við Skarphéðinn má hlusta á í heild hér að neðan.