Samkvæmt heimildum Markaðarins var aðsókn í ísgöngin, sem eru stærstu manngerðu ísgöng í heimi, um sextíu prósent minni á fyrsta fjórðungi ársins en áætlanir Into the Glacier höfðu gert ráð fyrir. Eigendur Arctic Adventures, stærsta ferðaþjónustufyrirtækis landsins á sviði afþreyingar, eru sagðir vilja bíða og sjá hvernig sumarmánuðirnir muni ganga en ekki er loku fyrir það skotið að hætt verði við samrunann.
Samkeppniseftirlitið lagði blessun sína yfir kaupin í síðasta mánuði en þau eru hins vegar ekki frágengin og eru viðræðurnar um þau á viðkvæmu stigi, eftir því sem Markaðurinn kemst næst. Ljóst er að verðið sem upphaflega var samið um þegar samkomulag náðist um samrunann í janúar síðastliðnum var byggt á áætlunum sem munu nú ekki ganga eftir.

„Við erum í samningaferli sem tekur tíma en við erum að vonast til þess að þetta klárist síðla sumars,“ segir Sigurður í samtali við Markaðinn.
Fjögur félög til viðbótar
Samkomulagið sem forsvarsmenn Arctic Adventures og Into the Glacier gerðu með sér í janúar fól í sér að fyrrnefnda félagið keypti allt hlutafé í því síðarnefnda af framtakssjóðnum Icelandic Tourism Fund, sem er í rekstri Landsbréfa og fer með 94 prósenta hlut í rekstrarfélagi ísganganna, og Sigurði sem heldur á tæplega sex prósenta hlut í félaginu.Til viðbótar stóð til að Arctic Adventures keypti eignarhluti framtakssjóðsins í fjórum afþreyingarfyrirtækjum í ferðaþjónustu, Óbyggðasetrinu í Fljótsdal, Raufarhólshelli, Borea Adventures á Ísafirði og leiksýningunni Icelandic Sagas – The greatest hits, sem sýnd er í Hörpu.
Framtakssjóðurinn er í eigu Icelandair Group, Landsbankans og sjö lífeyrissjóða.
Ýktar sveiflur
Alls heimsóttu 63 þúsund manns ísgöngin í fyrra en talsvert hefur dregið úr aðsókn í ár, eins og áður sagði. Sigurður segir að sveiflurnar í aðsókninni hafi verið nokkuð ýktar. „Janúar og febrúar voru slæmir hjá okkur annað árið í röð, mars var aðeins undir væntingum og síðan var höggið mikið í apríl. Hins vegar líta maí, júní, júlí og ágúst mjög vel út. Staðan fyrir júní er til dæmis sterkari en í fyrra. Þetta eru ekki bara slæm tíðindi. Sveiflurnar eru bara ýktari,“ útskýrir Sigurður.Þrátt fyrir tugprósenta fækkun ferðamanna í kjölfar falls WOW air og kyrrsetningar 737 MAX 8 véla Icelandair segir Sigurður forsvarsmenn Into the Glacier bratta fyrir sumarið. „Það þýðir ekkert annað. Sem dæmi er aukning í komum skemmtiferðaskipa til Íslands á milli ára. Það er ekki allt neikvætt.“
Samanlögð velta Arctic Adventures og Into the Glacier var tæplega sjö milljarðar króna í fyrra en hjá félögunum tveimur starfa samanlagt um 300 manns. Ísgöngin voru metin á um 1.565 milljónir króna í bókum Icelandic Tourism Fund í lok árs 2017 en bókfært virði þeirra jókst um ríflega 55 prósent á árinu.