Arnór Ingvi flaug ekki með félögum sínum til London en nær samt Chelsea leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. febrúar 2019 13:45 Arnór Ingvi Traustason gæti boðið upp á Bebeto fagn ef hann skorar á Brúnni í kvöld. EPA/Andreas Hillergren
Arnór Ingvi Traustason og félagar í Malmö FF spila í kvöld við Chelsea í seinni leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Það var ekki öruggt að Arnór Ingvi gæti spilað leikinn á Stamford Bridge í kvöld en hann staðfesti á Instragram síðu sinni að hann sé á leiðinni til London. Arnór Ingvi flaug ekki til London með félögum sínum á miðvikudagsmorguninn því kærasta hans, Andrea Röfn Jónasdóttir, átti von á þeirra fyrsta barni og þau eignuðust síðan stúlku í gær. Andrea Röfn hafði farið ellefu daga fram yfir tímann en barnið kom í heiminn í gær og nýi pabbinn gat því drifið sig aftur í vinnuna í dag. Uwe Rösler, þjálfari Malmö FF, lét vita af fæðingunni á blaðamannafundi í gær. „Við getum allir fagnað núna því hann eignaðist litla prinsessu,“ sagði Rösler en gat þá ekki staðfest komu Arnórs í dag. „Við sjáum til hvernig þetta gengur hjá þeim. Við vonumst eftir því að Arnór komi á morgun því við þurfum á okkar bestu mönnum að halda,“ sagði Rösler. Chelsea vann fyrri leik liðanna 2-1 í Svíþjóð og það þarf því margt að ganga upp í kvöld ætli Malmö að slá út ensku bikarmeistarana. Arnór Ingvi setti í dag mynd inn á Instagram (sjá fyrir neðan) þar sem er mynd af honum á flugvellinum og á henni stóð „London, United Kingdom“ en íslenski landsliðsmaðurinn er þar með mættur til Lundúna og verður með í kvöld.Leikur Chelsea og Malmö FF hefst klukkan 20.00 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Fleiri fréttir Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Sjá meira