Æft tvisvar á dag í aðdraganda Ungverjaleiksins: „Ég er að vinna upp“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. ágúst 2019 11:19 Jón Þór stýrir íslenska landsliðinu í fyrsta sinn á Laugardalsvelli annað kvöld. vísir/vilhelm
Jón Þór Hauksson stýrir íslenska kvennalandsliðinu í fyrsta sinn í keppnisleik annað kvöld. Ísland tekur þá á móti Ungverjalandi í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2021. Íslenska liðið hefur æft stíft í aðdraganda leiksins. Í gær voru tvær æfingar og það sama verður uppi á teningnum í dag. Á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í dag gantaðist Jón Þór með að hann væri ekki búinn að vera með liðið síðan í júní og ætti nokkrar æfingar inni. „Ég er að vinna upp. Ég hef ekki þjálfað síðan í júní og á 50 æfingar inni,“ sagði Jón Þór í léttum dúr. Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði, sagðist lítið kippa sér upp við stífar æfingar enda ýmsu vön frá Þýskalandi þar sem hún leikur. Jón Þór sagði þó að þjálfarateymi íslenska liðsins reyndi að stýra álaginu enda spiluðu margir leikmenn með sínu félagsliði á sunnudaginn. „Við höfum reynt að stýra álaginu og þetta var frekar rólegt í gær. Flestir leikmannnanna eru vanir að vera í fríi tveimur dögum eftir leik. Við reynum að passa upp á þær,“ sagði Skagamaðurinn. Leikur Íslands og Ungverjalands hefst klukkan 18:45 og verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18:00.
EM 2021 í Englandi Tengdar fréttir Sara Björk: Ungu stelpurnar hafa komið inn með sjálfstraust sem þær þurfa að gera Landsliðsfyrirliðinn er spenntur fyrir ungu leikmönnunum í íslenska liðinu. 28. ágúst 2019 12:00 Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Dagskráin í dag: Það er pílan Sport „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Fleiri fréttir Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Sjá meira
Sara Björk: Ungu stelpurnar hafa komið inn með sjálfstraust sem þær þurfa að gera Landsliðsfyrirliðinn er spenntur fyrir ungu leikmönnunum í íslenska liðinu. 28. ágúst 2019 12:00