Sport

Sjáðu tíu bestu tilþrifin í NFL-deildinni á árinu 2018: Ótrúlegt snertimark Miami Dolphins númer eitt

Anton Ingi Leifsson skrifar
Miami Dolphins fagnar snertimarki.
Miami Dolphins fagnar snertimarki. vísir/getty
Deildarkeppni NFL-deildarinnar lauk í síðustu viku og úrslitakeppnin hefst um helgina í beinni á Stöð 2 Sport um helgina.

Eins og Vísir gerði góð skil á dögunum þá er allt klárt fyrir úrslitakeppnina en allir fjórir leikir úrslitakeppninnar um helgina verða í beinni.

Tímabilið er búið að vera bráðskemmtilegt og mörg frábær tilþrif hafa litið dagsins ljós. Nú hefur NFL-deildin tekið saman öll helstu tilþrif vetrarins.

Það sem er á toppnum er mögnuð sókn Miami Dolphins gegn New England Patriots en það er ljóst að sjón er sögu ríkari.

Öll tilþrifin tíu má sjá hér að neðan.

NFL

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×