Manchester United á toppnum á öllum sviðum eftir að Ole Gunnar tók við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2019 11:30 Paul Pogba hefur farið á kostum síðan að Ole Gunnar Solskjær tók við liði Manchester United. Hann lagði upp sigurmarkið á móti Tottenham. Getty/James Williamson
Það er mjög athyglisvert að skoða töfluna í ensku úrvalsdeildinni þann tíma sem Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær hefur ráðið ríkjum hjá liði Manchester United en hann tók við liðinu 19. desember síðastliðinn. Manchester United er búið að vinna fimm fyrstu deildarleiki sína síðan að Ole Gunnar Solskjær settist í stjórastólinn á Old Trafford. Hér fyrir neðan má sjá árangur liðanna í ensku úrvalsdeildinni í síðustu fimm umferðum eða síðan að Ole Gunnar tók við starfi Jose Mourinho.The Premier League table since Ole Gunnar Solskjaer's appointment pic.twitter.com/zCEg19ZOYC — WhoScored.com (@WhoScored) January 13, 2019Manchester United liðið er á þessum tíma með flest stig (15), flest mörk skoruð (15), fæst mörk fengin á sig (3) og bestu markaöluna (+12). Tottenham liðið er reyndar búið að skora jafnmörg mörk og Manchester United í þessum fimm umferðunum en leikmönnum Tottenham tókst hinsvegar ekki að skora hjá United-liðinu á heimavelli sínum í gær. United-liðið hefur náð í þrjú fleiri stig en Liverpool, hefur náð í fimm fleiri stig en Cheslea og er búið að ná í níu fleiri stig en nágrannarnir og ríkjandi meistarar í Manchester City. Að auki kom Ole Gunnar Solskjær sínum mönnum áfram í enska bikarnum og varð í gær fyrsti knattspyrnustjórinn í sögu Manchester United til að vinna sex fyrstu leiki sína sem stjóri félagins. Í síðustu fimm deildarleikjum Manchester United undir stjórn Jose Mourinho þá vann United liðið aðeins einn leik, fékk samtals bara sex stig og fékk á sig heil 8 mörk. Liðið skoraði reyndar níu mörk en það dugði þó oft skammt. Manchester United er því búið að fá níu fleiri stig, hefur skorað sex fleiri mörk og er með ellefu marka betri markatölu í fyrstu fimm deildarleikjum sínum undir stjórn Ole Gunnar en í þeim fimm síðustu undir stjórn Mourinho.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira