Magnús Már nýr framkvæmdastjóri BSRB Kristín Ólafsdóttir skrifar 10. janúar 2019 09:05 Magnús Már Guðmundsson. Mynd/BSRB
Magnús Már Guðmundsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu. Magnús tekur við starfinu af Helgu Jónsdóttur sem lét af störfum um áramótin. Magnús hefur verið borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar frá árinu 2014 en mun óska eftir leyfi frá störfum á fundi borgarstjórnar í næstu viku. Hann er með B.A.-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands með stjórnmálafræði sem aukagrein. Hann er með kennsluréttindi sem grunn- og framhaldsskólakennari og hóf nýlega meistaranám í opinberri stjórnsýslu. Þá starfaði Magnús með fötluðum börnum og ungmennum hjá Íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkurborgar með námi á árunum 2002 til 2008. Hann var fréttamaður á fréttastofu Vísis og Bylgjunnar að námi loknu en hóf störf sem kennari í Menntaskólanum í Kópavogi árið 2011. Hann var kjörinn varaborgarfulltrúi í Reykjavíkurborg árið 2014, varð tímabundið borgarfulltrúi árið 2016, en hefur verið varaborgarfulltrúi aftur frá árinu 2017. Haft er eftir Magnúsi í tilkynningu að hann hlakki til að starfa innan bandalagsins og í aðildarfélögum þess. Þá segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB að það sé mikill fengur fyrir félagið að fá Magnús til liðs við það.
Vistaskipti Mest lesið Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili Innlent Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Innlent „Árleg æfing í vonbrigðum“ Innlent Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Sjúkratryggingar auglýsa eftir rekstraraðilum hjúkrunarheimila Góður árangur af hraunkælingu við varnargarðana Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Vara við gosmengun á nærliggjandi svæðum í dag Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili „Árleg æfing í vonbrigðum“ Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Sjá meira