Björgunarsveitarfólk leitar enn að konu í Skaftafelli sem var viðskila við samferðafólk sitt um miðjan dag. Útkall barst björgunarsveitarfólk í sjöunda tímanum í dag og hafa því hópar sem komu fyrst á vettvang verið við leit í nokkra klukkutíma að konunni.
Enn er verið að boða út mannskap til að taka þátt í þessari leit og hefur björgunarsveitarfólk frá Árnessýslu og til Vopnafjarðar boðað komu sína á svæðið.
Áhöfnin á TF-LÍF, þyrlu Landhelgisgæslunnar tekur þátt í leitinni að konunni. Þyrlan tók á loft frá Reykjavík skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld og var komin á vettvang um klukkustund síðar.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar sagði í samtali við fréttastofu að leitað yrði eins lengi og aðstæður leyfa og eins lengi og óskað er eftir, en Veðurstofan gerir ráð fyrir versnandi veðri á svæðinu þegar líður á nóttina.
Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir að 27 björgunarsveitarhópar, sem telji um 100 manns, taki þátt í aðgerðum. Þá hefur verið kallað eftir auka mannskap frá björgunarsveitum í Árnessýslu í vestri til Vopnafjarðar í austri. Flestir björgunarsveitarmanna fara um á fæti en auk annarra tækja er reynt að nota hitamyndavél.
Þá verða einhverjir björgunarsveitarmenn með leitarhunda með sér og dróna.
Fyrr í kvöld tókst að miða út síma konunnar sem gaf einhverjar vísbendingar um för hennar en svæðið sem þarf að leita á er afar stórt.
Að sögn Davíðs var konan ágætlega búin fyrir gönguferð í þjóðgarðinum.
