Jón Arnór sekkur ekki í Síkinu: Þriðji 30 stiga leikurinn hans á Króknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2019 15:30 Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Bára
Jón Arnór Stefánsson hélt uppteknum hætti í Síkinu í gær þegar hann fór fyrir endurkomu sigri KR á Tindastól í Domino´s deild karla í körfubolta. Jón Arnór skoraði 34 stig í leiknum sem þriðja hæsta stigaskor hjá íslenskum leikmanni í deildinni í vetur. Aðeins Brynjar Þór Björnsson hjá Tindastól og Elvar Már Friðriksson hjá Njarðvík hafa skorað meira í einum leik. Þessi frammistaða Jóns í Síkinu í gær þarf kannski ekki að koma á óvart því þetta er þriðji 30 stiga leikur hans í deildinni og fimmti tuttugu stiga leikur hans í deildinni í þessu húsi. Jón Arnór hefur spilað sex deildarleiki í húsinu og skorað í þeim 26,3 stig að meðaltali. Jón Arnór Stefánsson hefur skorað 24 stig eða meira í fimm af sex leikjum sínum í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Jón Arnór hefur hitt úr 62,8 prósent þriggja stiga skotum sínum í þessum sex leikjum eða 27 af 43. Það er aðeins 2017-18 tímabilið sem sker sig úr en þá var Jón Arnór lang frá sínu besta vegna meiðsla. Hann skoraði bara 10 stig í deildarleiknum á Króknum og svo „bara“ samanlagt 19 stig í tveimur leikjum í Síkinu í úrslitakeppninni. Í tveimur bestu stigaleikjum Jóns Arnórs í Síkinu, 33 stiga leik í janúar 2017 og svo 34 stiga leiknum í gær þá hefur KR-liðið komið til baka úr slæmri stöðu. KR var mest 21 stigi undir í sigrinum í gær og mest 28 stigum undir í sigrinum fyrir tveimur árum. Þeir eru hins vegar aldrei úr leik með Jón Arnór Stefánsson innanborðs. Hér fyrir neðan má sjá þessa mögnuðu framgöngu Jóns Arnórs á Sauðárkróki í deildarleikjum sínum þar á ferlinum.Deildarleikir Jóns Arnórs Stefánssonar með KR-liðinu í Síkinu: 27 stig í 70-85 tapi 8. mars 2001 (hitti úr 4 af 8 þriggja stiga skotum) 24 stig í 75-72 sigri 3. mars 2002 (hitti úr 3 af 7 þriggja stiga skotum) 30 stig í 96-70 sigri 30. nóvember 2008 (hitti úr 5 af 5 þriggja stiga skotum) 33 stig í 94-87 sigri 6. janúar 2017 (hitti úr 6 af 7 þriggja stiga skotum) 10 stig í 80-105 tapi 2. mars 2018 (hitti úr 2 af 4 þriggja stiga skotum) 34 stig í 91-88 sigri 31. janúar 2019 (hitti úr 7 af 12 þriggja stiga skotum)- Jón Arnór Stefánsson er á sínu sjöunda tímabili í úrvalsdeild karla en spilaði bara í úrslitakeppninni á því fyrsta vorið 2000.
Dominos-deild karla Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira