Skoðun

Jón eða séra Jóna

Haukur Örn Birgisson skrifar
„Kynbundinn launamunur reyndist hins vegar vera 4,3% þegar greining var gerð á öllu úrtakinu,“ segir í glænýju svari forsætisráðherra við fyrirspurn Þorsteins Víglundssonar þingmanns um stöðuna á kynbundnum launamun innan stjórnarráðsins, þ.e. á meðal starfsmanna ráðuneytanna. Oftar en ekki rata upplýsingar um svona gróft og ástæðulaust kynjamisrétti í fjölmiðla og er haldið á lofti með háværum kröfum verkalýðsforystunnar, femínista og stjórnmálamanna um tafarlausar úrbætur. Að þessu sinni kvað við annan tón.

Það voru engin mótmæli og enginn sá ástæðu til að senda frá sér ályktun eða tjá sig við fjölmiðla, a.m.k. ekki svo ég hafi orðið þess var. Ætli ástæða þess hafi verið sú að launamunurinn var starfskonum ráðuneytanna í hag? Þær voru nefnilega með hærri laun en karlarnir. Kannski felst minna óréttlæti í því.

Ég leyfi mér reyndar að efast um að nokkurt einasta fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag ákveði viljandi að greiða konu lægri laun heldur en karlmanni fyrir sömu vinnuna – nú eða öfugt. Enginn hefur slíkan ásetning og ég hef aldrei heyrt nokkra manneskju nafngreinda í því samhengi. Næg ættu samt dæmin að vera, miðað við umræðuna.

Á launamuninum eru nefnilega aðrar skýringar en kynferði en í vandaðri skýrslu velferðarráðuneytisins „Launamunur karla og kvenna“, frá því í maí 2015, sögðu skýrsluhöfundar að þeir gætu „ekki með vissu ályktað að sá óskýrði launamun­ur sem hér hef­ur verið met­inn sé ein­göngu vegna kyn­ferðis“.

Hverju sem þessu líður þá treysti ég því að karlkyns starfsmönnum stjórnarráðsins verði sýndur skilningur þegar þeir ákveða að leggja niður störf í dag kl. 15:39 til að vekja athygli á þessu gargandi óréttlæti.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×