Vínyl hóf rekstur veturinn 2015 og segir Sonja Magnúsdóttir, einn eigenda kaffihússins, að í upphafi árs 2016 hafi verið tekin ákvörðun um að Vínyl yrði alfarið vegan. Það hafi skapað kaffihúsinu töluverða sérstöðu á sínum tíma, enginn annar veitingastaður í Reykjavík sneiddi alfarið fram hjá dýraafurðum. Ekki leið því á löngu áður en farið var að lýsa staðnum sem „Griðastað grænkera“ í fjölmiðlum. Allar götur síðan hefur Vínyl notið mikilla vinsælda og hlotið góða dóma viðskiptavina, eins og ummæli þeirra á TripAdvisor og Facebook bera með sér.
Sérstaðan minnkað
Nú hafa eigendur staðarins hins vegar ákveðið að breyta til. Þrátt fyrir að ekki sé búið að fullklára nýja matseðilinn segir Sonja að á honum verði að finna dýraafurðir. Ástæðan sé fullkomlega viðskiptalegs eðlis. Sonja útskýrir að frá opnun Vínyls hafi sérstaða hans sem vegan-veitingastaður minnkað með hverju árinu. Með fjölgun grænkera hafi fleiri veitingastaðir svarað kalli þeirra og farið að bjóða upp á dýraafurðalausa rétti. Jafnvel veitingastaðir sem hafa gert út á kjötát séu farnir að reiða fram veganborgara eða hnetusteikur.Aðstandendur Vínyls hafa ekki farið varhluta af þessari þróun að sögn Sonju. Viðskiptin hafi dalað að undanförnu og það er ekki eins og þetta hafi verið „gróðabransi“ fyrir, eins og Sonja kemst að orði. Það megi þó ekki aðeins rekja til aukins framboðs annarrra veitingastaða á veganmat. Matvöruverslanir hafi jafnframt stóraukið úrval sitt á síðustu árum og þannig gert grænkerum auðveldara að elda heima.

„Kem ekki aftur til ykkar. Ógeð!!!“
Sérstaða Vínyls sé því lítil þessa dagana og því verði eigendurnir að höfða til fleiri neytenda. Sonja segir jafnframt dæmi þess að viðskiptavinir setjist niður en standi strax upp aftur þegar þeir hafa séð að matseðill Vínyls var alfarið vegan. Það þurfi jafnframt að ná til þeirra, Vínyl verði að geta tekið á móti öllum.Sonja greindi sjálf frá stefnubreytingu Vínyls í fjölmennum hópi íslenskra grænkera á Facebook, Vegan Ísland. Á meðan ýmsir grænkerar þökkuðu Vínyl fyrir frumkvöðlastarf sitt er ekki að sjá að ákvörðunin hafi mætt miklum skilningi meðal grænkera. Vínyl og Sonju var úthúðað.
„Sorglegt að skipta út sál og karakter fyrir sálarleysi og kvalir,“ skrifar einn grænkeri við færslu Sonju. „Ég held í alvöru talað að þið hefðuð getað tekið betri viðskiptaákvörðun um að bjarga rekstrinum en að leggjast svona lágt og selja sál ykkar fyrir lítið. Ég er fastakúnni sem mun ekki koma til ykkar aftur,“ skrifar annar. „Ef vínyl hættir að vera all Vegan mun ég ekki fara þangað aftur. Siðferðisrof sem ég er ekki tilbúin að kyngja,“ segir ósáttur grænkeri áður en annar bættir við: „Kem ekki aftur til ykkar. Ógeð!!!“
Ástríðufullir grænkerar
Þá blandar einn kokka Vínyls sér í umræðurnar og segir að frá og með breytingunum í apríl muni hann róa á önnur mið. Hann hafi í hyggju að ráðast í eigin veganverkefni, fyrst að Vínyl hefur boðið dýraafurðir velkomnar. Þá setja margir, sem tjá sig við færslu Sonju, út á tónlistina á staðnum. Hún sé spiluð á alltof háum styrk þannig að erfitt sé að halda upp samræðum. Réttast væri að lækka tónlistina áður en hróflað verður við matseðlinum.Sonja segir að þessi viðbrögð hafi ekki komið sér mikið á óvart, grænkerar séu ástríðufullir. Þeir munu þó áfram geta fengið veganrétti eftir breytingarnar á Vínyl. Að sama skapi verði áfram spiluð tónlist á staðnum.
Sem fyrr segir mun Vínyl loka 1. mars en opna aftur í bistrostíl í apríl.