Rekstrartekjur Orkuveitunnar jukust en hagnaður dróst saman Hallgerður Kolbrún E Jónsdóttir skrifar 14. mars 2019 15:44 Höfuðstöðvar Orkuveitunnar. Orkuveita Reykjavíkur
Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur dróst saman um tíu milljarða króna á milli áranna 2017 og 2018, úr 16 milljörðum króna árið 2017 í sex milljarða í fyrra. Í fréttatilkynningu Orkuveitunnar segi að ástæðan fyrir minni hagnaði sé lækkun á álverði. Rekstrartekjur fyrirtækisins jukust um 5,2% frá árinu 2017 og rekstrarkostnaður jókst um 0,1%. Rekstrarhagnaður óx um rúman einn milljarð króna á milli áranna 2017 og 2018. Samþykkt hefur verið af stjórn Orkuveitunnar að greiða 1,5 milljarð króna í arð til eigenda fyrirtækisins. Reykjavíkurborg fær 1,4 milljarða króna af arðgreiðslunni sem stærsti hluthafi Orkuveitunnar með tæplega 94 prósenta hlut. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, segir viðskiptavini njóta ábatans af rekstrinum og verð á ýmissi þjónustu hafi lækkað ítrekað eða staðið í stað undanfarið. „Enn á ný sjáum við traust tök á rekstri Orkuveitusamstæðunnar skila fyrirtækjunum góðri afkomu. Sú menning sem hér hefur skapast – að velta fyrir sér hverri krónu áður en henni er ráðstafað – er á meðal þeirra verðmæta sem Orkuveita Reykjavíkur býr að. Ytri skilyrði breytast án þess að við fáum um þau ráðið. Markviss vinna að áhættuvörnum leyfir okkur þó að leggja þennan ársreikning fyrir eigendur fyrirtækisins með nokkru stolti,“ er haft eftir Bjarna í fréttatilkynningu frá Orkuveitunni.
Orkumál Reykjavík Mest lesið Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Atvinnulíf Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Neytendur Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Viðskipti innlent Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Viðskipti innlent Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Viðskipti innlent „Óumflýjanlegt“ kílómetragjald kynnt í vikunni Neytendur Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Atvinnulíf Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Harma ónákvæma tilkynningu Kauphallar Landsbankinn fór fýluferð í Landsrétt vegna Borgunar Skrifuðu undir viljayfirlýsingu um Coda-stöð í Ölfusi Loðnuvertíð eftir allt saman Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Play í sögulegri lægð eftir merkingu Kauphallar Bein útsending: Stærðin skiptir máli Rannsaka gögnin sem skera úr um hvort það verði loðnuvertíð Kaupin á TM: „Þetta mun einfaldlega ganga í gegn“ Árstekjur starfsmanna lækkuðu um fimmtung vegna loðnubrests „Tugir kúabúa gætu þurft að hætta“ „Það kæmi mér verulega á óvart ef þessi samruni yrði að veruleika“ Hulda ráðin framkvæmdastjóri Nox á Íslandi Bætast í eigendahóp Markarinnar Þriðjungur flugvéla Play leigðar út í næstum þrjú ár Fjallað um strandveiðar á Alþingi í sérstakri umræðu Samruninn skili ekki aukinni samkeppni Níu milljarða tap en staðan styrkist Fetar ekki í fótspor forvera sinna hvað ÁTVR varðar „Það er verið að vernda stórkaupmenn“ Nýir eigendur ætla að „troðfylla búðina af nauðsynjavöru” Sjá meira