Þessi hispurslausu ummæli hafa farið fyrir brjóstið á mörgum manninum enda ekki beinlínis í takti við tíðarandann.

Roald vekur athygli á þessum ummælum Eddu á Facebooksíðu sinni og eru flestir sem þar taka til máls á því að Edda Sif hafi þarna farið langt fram úr öllu því sem ásættanlegt má heita í galsahætti á samfélagsmiðlum. Söngvarinn Friðrik Ómar spyr þó hvort Þetta sé nú ekki „aðeins of mikið drama“? En, Roald segir svo alls ekki vera.
Þó er ein úr fjölmiðlastétt sem rís Eddu Sif til varnar, en það er samkvæmisfréttakonan Marta María Jónsdóttir sem spyr Roald, sem hún starfaði með á sínum tíma á Fréttablaðinu, hvort menn séu alveg búnir að tapa húmornum?