Bíó og sjónvarp

Það sem er rétt og rangt í kvikmyndinni um Mötley Crüe

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nikki Sixx, Tommy Lee, Vince Neil og Mick Mars.
Nikki Sixx, Tommy Lee, Vince Neil og Mick Mars.
Kvikmyndin The Dirt kom út þann 22. mars á Netflix en hún fjallar um sögu hljómsveitarinnar Mötley Crüe.

Rokksveitin sló í gegn á fyrir rúmlega þrjátíu árum og var líf hljómsveitameðlima heldur betur skrautlegt eins og kemur fram í myndinni.

Meðlimir sveitarinnar eru þeir Nikki Sixx, Tommy Lee, Vince Neil, Mick Mars og hefur sveitin selt yfir 41 milljón platna frá árinu 1981.

Í myndinni The Dirt kemur sannarlega fram hvernig líferni hljómsveitameðlima var á sínum tíma. Mikið var drukkið, gríðarlega mikið um fíkniefnaneyslu og kynlíf.

Nikki Sixx var í viðtali á dögunum hjá Entercom og svaraði hann spurningum hvað væri satt og eða rangt af þeim hlutum sem koma fram í myndinni.

Til að mynda kom fram í The Dirt að þeir félagarnir hafi töluvert verið í samfloti með Ozzy Osbourne og í einu atriðinu tók Osbourne skordýr í nefið og sleikti eigið hland af sundlaugabakka.

Hann lét ekki þar við sitja og sleikti einnig upp hland meðlima Mötley Crüe. Hér að neðan má sjá viðtalið við Sixx.

Grunge tekur einnig saman það sem er einfaldlega rangt í kvikmyndinni The Dirt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.