Lífið

Stikla úr Flórídafanganum: Magni Böðvar skallaði borð þegar hann var handtekinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magni Böðvar játaði á sínum tíma.
Magni Böðvar játaði á sínum tíma.
Þann 12. október 2012 hvarf Sherry Lee Prather. Þann 19. nóvember 2016 var Magni Böðvar Þorvaldsson, betur þekktur sem Johnny Wayne Johnson, handtekinn og í framhaldinu ákærður fyrir morð.

Dómstóll í Jacksonville í Flórída dæmdi Magna Böðvar í 20 ára fangelsi eftir að hann játaði að hafa myrt Sherry Prather.

Seinast sást til konunnar á lífi er hún yfirgaf næturklúbb ásamt Magna þann 12. október árið 2012. Í kjölfarið hófst mikil leit að Prather sem stóð yfir í rúman mánuð. Í nóvember sama árs fékk lögregla svo upplýsingar um líkfund við Braddock Road í Jacksonville og reyndist líkið eftir nánari skoðun vera af Prather.

Þann 19. maí hefur göngu sína á Stöð 2 ný þáttaröð sem ber nafnið Flórídafanginn og er í umsjón Kjartans Atla Kjartanssonar. Þættirnir, sem voru að stórum hluta til teknir upp á Flórída, fjalla um Magna Böðvar og morðið á Prather.

Hörmuleg áhrif morðsins

Flórídafanginn fjallar um morðmálið sjálft sem mikið var fjallað um hér á landi. Málið er töluvert flóknara en virðist við fyrstu sýn og er farið ítarlega í atburðarásina í þessari þáttaröð.

„Áhorfendur fá að kynnast fjölskyldum þeirra beggja. Við vörðum miklum tíma með móður Sherry og annarri dóttur hennar. Við vildum segja sögu hennar og sýna hversu hörmuleg áhrif morðið hafði á hennar fólk,“ segir Kjartan Atli.

„Við heimsóttum einnig fjölskyldu Magna, en móðir hans elur upp syni hans við aðstæður sem eru ansi fjarlægar þeim „ameríska draumi“ sem gjarnan er talað um. Máli Sherry Prather er fylgt vel eftir en þættirnir veita einnig innsýn í fjarlægan heim, innsýn í líf sem við sjáum ekki í Hollywood-kvikmyndum. Þeir varpi ljósi á stöðu margra Bandaríkjamanna, sem lifa við knappan kost.“

Hér að neðan má sjá brot úr þáttunum sem hefja göngu sína í næsta mánuði.


Tengdar fréttir

Magni Böðvar fyrir dóm í desember

Íslendingur í Flórída hefur verið ákærður fyrir morð. Hann hefur einu sinni mætt fyrir dóminn og á að mæta aftur tólfta desember. Áður verið dæmdur í fangelsi fyrir innbrot og ákærður fyrir umferðarlagabrot.

Óttast að Magni fái ekki sanngjörn réttarhöld

"Ég er lafhrædd um að hann fái alls ekki sanngjörn réttarhöld,“ segir Sara Hatt, unnusta Magna Böðvars Þorvaldssonar sem ákærður hefur verið fyrir morð í Jacksonville í Flórída.

Magni kvaðst vera saklaus

Magni Böðvar Þorvaldsson, sem ákærður er fyrir morðið á Sherry Prather sem framið var árið 2012, mætti fyrir dóm í Jacksonville í Flórída í gær og kvaðst saklaus. Þá var ákæran einnig lesin upp fyrir Magna.

Íslendingur í haldi lögreglu í Flórída vegna gruns um morð

Magni Böðvar Þorvaldsson er í haldi lögreglunnar í Jacksonville í Flórída grunaður um að hafa banað Sherry Prather árið 2012. Vísbendingar tveggja vitna leiddu til sterks gruns lögreglu um að hann tengdist morðinu.

Magni játar að hafa myrt Sherry

Dómstóll í Jacksonville í Flórída hefur dæmt Magna Böðvar Þorvaldsson í 20 ára fangelsi eftir að hann játaði að hafa myrt Sherry Prather árið 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.